|
Handbók í námstækni fyrir fullorðna nemendur |
|
Markmið verkefnisins er að gera handbók með fræðslu- og þjálfunarefni fyrir nemendur. Líta má á handbókina sem hugmyndabanka sem nýtist í fræðslu og leiðsögn fyrir fullorðna nemendur. Verkefninu lýkur vorið 2007 en gert er ráð fyrir að handbókin verði tilraunakennd og þróuð áfram. |
|
Nánar...
|
|
|
Mat á námsleiðum er þróunarverkefni sem styrkt var af menntamálaráðuneytinu. Meginmarkmið verkefnisins var að bera saman námsleiðirnar Jarðlagnatækni og Grunnmenntaskóla. |
|
Nánar...
|
|
|
Fræðsluefni fyrir fanga er þróunarverkefni sem styrkt var af Starfsmenntsjóði félagsmálaráðuneytis. Megin markmið verkefnisins var að útbúa fræðsluefni fyrir fanga. |
|
Nánar...
|
|
|
Færnimappa fyrir 50 ára og eldri |
Færnimappa fyrir 50 ára og eldri er þróunarverkefni sem styrkt var af Starfsmenntsjóði félagsmálaráðuneytis. Markmið verkefnisins var að aðlaga þá færnimöppu sem hefur verið notuð þannig að hún henti fólki 50 ára og eldra. |
|
Nánar...
|
|
|
Bætt um betur - vélvirkjun |
|
Verkefnið hófst árið 2005 en því er ætlað að auðvelda fólki sem hafið hefur vélvirkjanám, unnið við fagið en ekki lokið sveinsprófi, að ljúka náminu. Markmið þess eru því að meta þekkingu sem hefur orðið til á vinnumarkaði inn í skólakerfið, að auka skilning hjá atvinnulífi og skólakerfi á raunfærnimati og þróa aðferðir við slíkt mat.
|
|
Nánar...
|
|
|
Íslenska fyrir alla 4 er bók og framhald af
Íslensku fyrir alla 1,2,3 sem eru bækur kenndar á íslenskunámskeiðum
Mímis. Stefnt er að fyrstu útgáfu í lok árs 2007. |
|
Nánar...
|
|
|
Málfræðihandbók ætluð fullorðnum nemendum í íslensku fyrir útlendinga. Hún mun innihalda einfaldar, aðgengilegar útskýringar og myndræna útfærslu á ýmsum málfræðiatriðum. Þannig er stefnt að því að auðvelda íslenskukennslu fyrir útlendinga. |
|
Nánar...
|
|
|
Bætt um betur –bílgreinar |
|
Verkefnið snýst um að auðvelda fólki sem hefur hafið iðnnám en ekki lokið því, að klára námið og fá metna reynslu og færni sem aflað hefur verið í starfi. Að loknu raunfærnimati er útbúin námsáætlun þar sem stefnt er að sveinsprófi. |
|
Nánar...
|
|
Markmið verkefnisins er að auðvelda fólki sem ekki hefur íslensku sem móðurmál að afla sér starfsmenntunar í umönnun. Þróað er námsefni í íslensku tengt námi í félagsliðabrú. |
|
Nánar...
|
|
|
Námsráðgjöf fyrir erlenda starfsmenn |
|
Markmiðið er að veita náms- og starfsráðgjöf fyrir erlenda starfsmenn á höfuðborgarsvæðinu og að taka saman upplýsingar og aðferðir sem nýtast markhópnum. |
|
Nánar...
|
|
|
Mímir – símenntun hefur til skamms tíma unnið að undirbúningi verkefnisins Fiskur og ferðaþjónusta, í samvinnu við aðila á Húsavík ásamt Starfsgreinasambandi Íslands.* Markmið verkefnisins er að búa til stutta starfsmenntabraut fyrir fólk sem starfar í ferðaþjónustufyrirtækjum sem byggja starf sitt að stórum hluta á hafi, vötnum og ám, s.s. hvalaskoðun, sjóstangaveiði, veiði í ám og vötnum, og framleiðslu eða matreiðslu úr fiski. |
|
Nánar...
|
|
|
Unnið hefur verið að þróun verkefnisins Enska og ferðaþjónusta, en þar er markmiðið að bjóða upp á námskeið í ensku á Netinu, fyrir starfsfólk í ferðaþjónustu. Námskeiðið gæti einnig nýst öllum þeim sem koma að samskiptum við enskumælandi ferðamenn. Markmið námskeiðsins er að þjálfa nemendur í að tjá sig munnlega og skriflega um helstu atriði sem varðar þjónustu við ferðamenn. |
|
Nánar...
|
|
|
Vinnuálag, líkamleg óþægindi og kvíði |
Mímir-símenntun hlaut styrk frá Starfsmenntasjóði félagsráðuneytisins til að þróa vefbundið námskeið um vinnuálag, kvíða og líkamleg einkenni. |
|
Nánar...
|
|
|
Unnið er að þróunarverkefninu “Námsráðgjöf á vinnustað” í samvinnu við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Eflingu-stéttarfélag og Starfsafl. Markmið með verkefninu er að starfsmönnum fyrirtækja verði gefinn kostur á námsráðgjöf á vinnustaðnum sjálfum. Með því er stefnt að auknum tækifærum fyrir félagsmenn Eflingar, Hlífar og V.S.F.K. til að afla sér upplýsinga um mögulegar námsleiðir, einstök námskeið og aðstoð við að setja sér námstengd markmið.
|
|
Nánar...
|
|
|
Mikil gróska er í fullorðinsfræðslu víða um heim. Mímir-símenntun leggur áherslu á að taka þátt í og fylgjast með því sem er að gerast á því sviði bæði innanlands og utan. |
|
Nánar...
|
|
|
Aftur í nám - fyrir lesblinda |
|
Mikil þörf er fyrir úrræði fyrir lesblinda og fólk með lesraskanir í þjóðfélaginu. Lesblindir hafa margir hverjir lent í verulegum erfiðleikum í skólakerfinu og því brýnt að bjóða upp á námskeið sem sérstaklega er ætlað til að taka á og leiðrétta lesblindu. |
|
Nánar...
|
|