Heim arrow Fréttir arrow Leikir í tungumálakennslu
Leikir í tungumálakennslu PDF Print Senda

Leikir í tungumálakennslu eru heppileg aðferð til að þjálfa talmál og samskipti. Fyrir fullorðna nemendur þurfa markmið leikjanna að vera skýr. Leiki er hægt að nota á markvissan hátt í nánum tengslum við annað námsefni og þjálfa þannig afmarkaða þætti tungumálsins í tali. Leikir sameina skemmtun og nám á áhrifaríkan hátt og ættu að vera órjúfanlegur hluti námsins en ekki eingöngu tilbreyting í lok tímans.

Um þetta fjallaði Þorbjörg  Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Mími-símenntun í fyrirlestri sem hún flutti á ráðstefnu um kennslu í íslensku sem erlendu og öðru máli. Ráðstefnan sem haldin var á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Fyrirlesturinn í heild sinni má nálgast hér.