Heim
Náms- og starfsráðgjöf fyrir fólk á vinnumarkaði PDF Print Senda

Hefur þú áhuga á að

  • skoða möguleika á námi?
  • fá upplýsingar um nám eða störf?
  • fá aðstoð við að kanna áhugasvið þitt og færni?
  • setja þér markmið og gera áætlun um nám eða starfsþróun?
  • fá aðstoð við að takast á við hindranir í námi?
  • fá leiðsögn um árangursrík vinnubrögð í námi og starfi?
  • auka möguleika í starfi og á vinnumarkaði
     

Mímir-símenntun býður upp á þjónustu náms- og starfsráðgjafa út á vinnustöðum og í húsnæði fyrirtækisins i Skeifunni 8, 108 Reykjavík.
 
Ráðgjöfin er fyrst og fremst ætluð fólki á vinnumarkaði með stutta formlega skólagöngu og innflytjendum. Ráðgjöfin er þátttakendum að kostnaðarlausu.
 

Nánari upplýsingar

Upplýsingar um mögulegar útfærslur á framkvæmd má fá hjá náms- og starfsráðgjöfum Mímis - símenntunar í síma:

580 1807 - Erla

580 1820 - Gígja  

580 1818 - Rakel  

580 1817 - Sigríður Dísa

580 1829 - Þuríður

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.

Vefslóðir      Sýnishorn af verkfæri