|
Náms- og starfsráðgjöf fyrir erlenda starfsmenn |
|
|
|
|
Náms- og starfsráðgjöf fyrir erlenda starfsmenn er heiti á þróunarverkefni sem náms- og starfsráðgjafar Mímis – símenntunar unnu að veturinn 2007 - 2008. Verkefnið felst m.a. í því að ráðgjafar hafa komið sér upp verkfæramöppu sem hægt er að nýta í ráðgjöf við erlenda starfsmenn.
Í henni felst að þýddar hafa verið upplýsingar af heimasíðu Mímis sem ætlað er að auðvelda aðgengi fólks af erlendum uppruna að upplýsingum er varða nám og störf og fleira sem viðkemur markhópnum. Einnig hafa ráðgjafar komið sér upp möppum þar sem annars vegar hafa verið teknar saman vefslóðir og bæklingar sem þýddir hafa verið á mörg tungumál og nýst geta í ráðgjöf við fólk af erlendum uppruna.Hins vegar eru verkefni sem ráðgjafar nota í vinnu með ráðþegum og hafa verið þróuð og þýdd á ensku og pólsku. Þar má m.a. finna verkefni er varða framkvæmdaáætlun, starfsgildi, áhugasvið o.fl. Síðast en ekki síst hefur verið þróað tæki/verkfæri sem auðveldar áhugasviðsgreiningar og viðtöl við ráðþega sem tala litla íslensku.
Hér á síðunni er yfirlit yfir slóðir og bæklinga sem eru í verkfæramöppunni. Þetta er birt með það í huga að náms- og starfsráðgjafar geti komið sér upp svipaðri möppu, kjósi þeir svo. Hér má einnig sjá sýnishorn úr áhugagreiningartækinu og verkefni sem er í möppu ráðgjafanna.
Allar frekari upplýsingar er hægt að fá hjá náms- og starfsráðgjöfum Mímis-símenntunar:
580 1807 - Erla
580 1820 - Gígja
580 1818 - Rakel
580 1817 - Sigríður Dísa
580 1829 - Þuríður
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
Vefslóðir Sýnishorn af verkfæri Efnisyfirlit úr möppu
|