Ráðgjöf fyrir erlenda starfsmenn

Ráðþegar
Ráðgjafar

Heim arrow Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjöf hjá Mími-símennntun PDF Print Senda

Náms– og starfsráðgjafar veita fólki á öllum aldri ráðgjöf og upplýsingar til að auðvelda ákvarðanatöku vegna náms- og starfsvals. Einnig aðstoða þeir einstaklinga við að takast á við ýmis verkefni sem tengjast námi og starfsþróun. Í starfi sínu hefur náms- og starfsráðgjafi það að meginmarkmiði að stuðla að velferð einstaklinga.

Náms- og starfsráðgjafar veita m.a. upplýsingar um nám og störf og aðstoða við að finna námsleiðir og starfsvettvang við hæfi. 

Hvers vegna náms- og starfsráðgjöf?

Í dag eru gerðar kröfur um að starfsmenn búi yfir góðri og fjölbreyttri kunnáttu.  Því skiptir máli að hver einstaklingur leiti leiða til að bæta við sig þekkingu og auka færni sína.  Þannig styrkir hann stöðu sína í starfi og á vinnumarkaði.  Það eykur ánægju og styrkir sjálfsmyndina að fást við það sem hver og einn hefur áhuga á.  

Vandi margra sem vilja auka menntun sína er að velja nám sem hentar og gera áætlun um fyrstu skref.  Þá geta þættir eins og tímaskortur eða vandi tengdur lestri eða ritun verið hindrun í að taka ákvörðun um nám.

Með því að ræða við náms- og starfsráðgjafa gefst tækifæri til að skoða og meta eigin stöðu, til dæmis áhuga og hæfni, átta sig á hvaða möguleikar eru í boði og gera áætlun um hvert skal stefna. Góð hvatning getur skipt sköpum þegar hefjast skal handa við ný verkefni.

Náms- og starfsráðgjafar

Til að fá nánari upplýsingar um þjónustuna eða til að bóka viðtöl eða kynningar á vinnustöðum er hægt að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Mímis:

Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
Beinn sími: 580 1820

Elín Júlíana Sveinsdóttir
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.  
Í barnegnarfríi

Erla María Gísladóttir
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
Beinn sími: 580 1807

Sigríður Dísa Gunnarsdóttir
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
Beinn sími: 580 1817

Þuríður Ósk Sigurjónsdóttir
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.  

Beinn sími: 580 1829

Fyrirspurnir er einnig hægt að senda á netfangið Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.