Viltu vinna við umönnun eða hjúkrun en þarft að bæta íslenskukunnáttu þína?
Á námskeiðinu nærð þú betri tökum á að tala og skilja íslensku. Með markvissum æfingum og þjálfun eykur þú færni þína í að tala íslensku, sérstaklega í samskiptum á sjúkrastofnunum, á hjúkrunarheimilum eða í heimahjúkrun.
Námskeiðið er framhaldsnámskeið á stigi A1.2-A2.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum*. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt og hagnýtt námsefni og lögð áhersla virka þátttöku nemenda. Þannig verður íslenskunámið bæði árangursríkt og skemmtilegt.
*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að vera fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.
Þú lærir og þjálfar orðaforða og orðasambönd sem tengjast raunverulegum aðstæðum við störf í umönnun og hjúkrun.
Þú verður öruggari í samskiptum á íslensku, hvort sem það er í samtölum við sjúklinga og íbúa hjúkrunarheimila eða samstarfsfólk.
Þú þjálfar skýran framburð á íslensku.
Hagnýt málfræðiatriði sem tengjast viðfangsefninu eru hluti af námsefninu og þjálfuð í samskiptum.*
*Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku.
Undanfari er að minnsta kosti Íslenska 1 og 2 (80 klukkustundir) eða sambærileg kunnátta.
Námskeiðið er kennt á íslensku. Þátttakendur verða að geta tjáð sig á einfaldan hátt á íslensku og kunna grunnatriði í málinu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
هل أنت متردد بشأن الدورة التدريبية الأنسب لك؟ هل تحتاج إلى تقييم خبراتك ومهاراتك؟ في Mími، نقدم لك إرشادًا شخصيًا ونساعدك في إيجاد المسار المناسب لدراستك أو مسيرتك المهنية.
عنوان البريد الإلكتروني [email protected]
الهاتف 580 1800