Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku en það er framhald af námskeiðinu Að lesa og skrifa á íslensku. Þú heldur áfram að byggja grunn í málinu og efla sjálfstraust til að nota tungumálið.
Við leggjum áherslu á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi. Námstækni, sjálfsefling og þjálfun í að nota rafrænar lausnir er hluti af námskeiðinu, auk fræðslu um íslenskt atvinnulíf.
Námskeiðið Íslenska, atvinnulíf og samfélag er námskeið á stigi 1 framhald/stig 2 hægferð í íslensku. Á námskeiðinu er haldið áfram að byggja upp grunnorðaforða í íslensku með áherslu á skilning, lestur, tal, ritun og hlustun. Farið er hægt yfir námsefnið og lögð áhersla á endurtekningar með fjölbreyttum og hagnýtum leiðum. Námstækni, sjálfsefling og þjálfun í að nota rafrænar lausnir er hluti af námskeiðinu. Hluti af námskeiðinu er fræðsla um íslenskt atvinnulíf, meðal annars réttindi og skyldur bæði vinnuveitenda og starfsmanna.
Námskeiðið skiptist í 67 klukkustundir af íslenskunámi og 16 klukkustundir af fræðslu um atvinnulífið og 12 klukkustundir af sjálfseflingu, alls 95 klukkustundir.
Íslenskunámið er framhaldsnámskeið í íslensku á stigi A1.1-A1.2 samkvæmt The European Language Framework . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Icelandic for everyone 1 og 2 er notað að hluta auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi. Einnig er notað sérhæft efni til þjálfunar í lestri, hljóðfræði og ritun.
Í atvinnulífshluta námskeiðsins er stuðst við fjölbreytt efni af opinberum vefsíðum sem tengjast efninu.
Kennarinn notar einfalda ensku til útskýringa eftir þörfum.
Námskeiðið er kennt á einfaldri ensku og íslensku.
Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.
Þú heldur áfram að þjálfa stafrófið og skýran framburð á íslensku.
Þú heldur áfram að byggja upp góðan grunnorðaforða í íslensku.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.**
Íslenskt atvinnulíf og vinnuumhverfi, sérstaklega réttindi og skyldur vinnuveitenda og starfsmanna, er kynnt.
Þú færð fræðslu og þjálfun í árangursríkum samskiptum fyrir samstarf og samvinnu.
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að verða fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.
The course is for people, 18 and over, sem vill halda áfram að læra íslensku, fræðast um íslenskt atvinnulíf og efla samskipti og sjálfstraust.
The target group for further education, as determined by the Board of the Training Fund. Terms and Conditions of the Education Fund
Námsmat byggist á mætingu, símati og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
The course is subsidised by the Education Fund to equalise access and promote learning for adults.
Teaching is conducted in accordance with the curriculum of the Centre for Professional Education, accredited by the Centre for Education and School Services, which ensures quality and reliability. Allar námskrár FA má nálgast hér
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Athugið að minimum participation is a prerequisite for running the course.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Other: For those coming from countries outside the EEA: Part of the conditions set by the Immigration Authority for obtaining indefinite leave to remain in Iceland is to have completed 150 lessons/120 hours of Icelandic language study. It does not matter if different levels are taken or if levels are repeated.
Unsure which course is best for you? Need to assess your experience and skills? At Mími, we offer personal guidance and help you find the right path in your studies or career.
Email address [email protected]
Telephone 580 1800