On-site
Autumn 2026

Preschool workshop and Icelandic 3

Hefur þú áhuga á að vinna með börnum en þarft að læra meiri íslensku?  Þá er þetta námskeið fyrir þig!

Leikskólasmiðja og íslenska 3 er sérstakt námskeið fyrir þau sem langar að vinna með börnum og þurfa traustan grunn í íslensku til að geta sinnt starfinu á árangursríkan og faglegan hátt.

Þetta er tækifæri fyrir þig til að læra hagnýta íslensku sem nýtist í starfi á leikskóla.

Autumn 2026
Alla virka daga frá 9:00-15:00
Höfðabakki 9
128 hours.
Price111,500 kr.

What is it like to study at Mími?

  • A friendly, relaxed and encouraging learning environment
  • Professional and experienced teachers
  • Effective and lively teaching methods
  • A diverse range of courses to suit everyone
  • Support and care

Námskeiðið samanstendur af fjölbreyttum námsþáttum sem miða að því að styrkja íslenskukunnáttu þína og veita þér nauðsynlega þekkingu og færni í mörgu því sem viðkemur leikskólastarfi á Íslandi.

  • Læra íslensku með starfstengdri áherslu: Þú byggir upp orðaforða sem nýtist sérstaklega í starfi með börnum.
  • Fá innsýn í leikskólastarf: Þú kynnist starfsháttum og menningu í leikskólastarfi á Íslandi sem eykur skilning þinn og gerir þig að verðmætari starfsmanni.
  • Taka þátt í skapandi vinnustofum: Í náminu er lögð áhersla á skapandi notkun tónlistar, útikennslu og leiklistar í starfi með börnum.
  • Fara í vettvangsnám í leikskóla: Þú færð fjögurra daga vettvangsnám í leikskóla þar sem þú tekur virkan þátt í daglegu starfi á leikskólanum. Þetta er gott tækifæri til að tengja námið við raunverulegar aðstæður.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku og hefur mikinn áhuga á að vinna á leikskóla.

The target group for further education, as determined by the Board of the Training Fund. Terms and Conditions of the Education Fund

Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur þurfa nemendur að hafa lokið Íslensku 2 eða hafa færni á stigi A1.2 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. You can see the frame better here.

  • Þú þarft að taka stöðupróf í íslensku í Mími áður en þú sækir um námskeiðið. Prófið er ókeypis og fer fram á Höfðabakka 9 á virkum dögum frá kl. 8:00-14:30. Þú verður að panta tíma í stöðupróf fyrir fram hjá verkefnastjóra.
  • Námsmat byggist á mætingu, verkefnavinnu og virkri þátttöku í náminu.
  • Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
  • Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika, auk íslenskunáms á stigi 3 með áherslu á starfstengdan orðaforða.

https://frae.is/namskra/allar-namskrar/

  • The course is subsidised by the Education Fund to equalise access and promote learning for adults.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.

Do you need help?

Unsure which course is best for you? Need to assess your experience and skills? At Mími, we offer personal guidance and help you find the right path in your studies or career.

Email address [email protected]

Telephone 580 1800

Advice at Mímir

Leit