Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku.
Þú byggir áfram upp grunnorðaforða og eflir sjálfstraust til að læra og nota tungumálið. Við leggjum áherslu á skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að halda áfram að byggja upp grunnorðaforða daglegs máls, bæði í skilningi og tali, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Íslenska 2 er framhaldsnámskeið á stigi A1.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 2 er notað auk aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Byggja áfram upp grunnorðaforða: Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar setningar bæði í samtölum og frásögn.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1 (40 klst.) eða sambærileg þekking.
Á öðru stigi er íslenska notuð í kennslu en enska notuð sem millimál ef nauðsyn krefur. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Sérsniðin lausn fyrir fjölbreytta hópa: Fyrir þau sem hafa ekki enskukunnáttu er boðið upp á Íslensku 2 hægferð, Íslensku, atvinnulíf og samfélag (námskrá FA) eða námskeið fyrir sérstaka tungumálahópa þar sem kennarinn talar tungumál hópsins.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800