21. مه 2026 - 25. ژوئن 2026
Á þessu námskeiði tölum við sænsku!
Þú munt halda áfram að þjálfa talað mál og byggja upp lesskilning, orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt. Áhersla er einnig á að þjálfa færni í ritun og framburð.
21. مه 2026 - 25. ژوئن 2026
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa grunn í sænsku eða hafa lokið sænsku 1.
Þú heldur áfram að byggja upp orðaforða og málfræði og þjálfa skilning, tal, ritun og framburð á fjölbreyttan hátt.
Námskeiðið er sniðið að þörfum nemenda hverju sinni.
Á námskeiðinu eru vikuleg heimaverkefni. Við lok námskeiðsins færð þú mat á stöðu þinni í sænsku.
Að læra enn betur að tjá þig og eiga samskipti á sænsku
Að byggja upp enn meiri orðaforða sem nýtist vel í daglegu lífi
Að halda áfram að þjálfa undirstöðuatriði í málfræði á hagnýtan hátt
Að þjálfa lesskilning, ritun og framburð á fjölbreyttan hátt.
Að kynnast menningu, samfélagi og lífsháttum í Svíþjóð.
Við lok námskeiðsins muntu búa yfir færni til að eiga samskipti á sænsku og getu til að skilja og nota hagnýtan orðaforða á fjölbreyttan máta.
Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.
Á námskeiðinu eru vikuleg heimaverkefni.
Við lok námskeiðsins færð þú mat á stöðu þinni í málinu.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800