
خدمات میمیس در دورههای آموزشی نمایندگان افلینگ ارائه شد.
Kristín Erla Þráinsdóttir, fagstjóri ráðgjafar og raunfærnimats og Sanda Björg Ernudóttir, verkefnastjóri hjá Mími kynntu þjónustu Mímis fyrir trúnaðarmönnum تقویت. Kynningarnar voru hluti af dagskrá námskeiða fyrir trúnaðarmenn sem komu úr ólíkum geirum vinnumarkaðarins. Á þeim var farið stuttlega yfir hvað Mímir hefur upp á að bjóða og hvernig þjónusta Mímis getur nýst félagsfólki Eflingar sem best.
Á kynningunum var áhersla lögð á að kynna náms- og starfsráðgjöf Mímis sem er öllum félagsmönnum Eflingar að kostnaðarlausu. ارزیابی شایستگی var einnig kynnt sem leið til að fá starfsreynslu metna og viðurkennda þegar formlegu námi hefur ekki verið lokið. Í raunfærnimati er hægt að greina og meta hæfni sem fólk hefur aflað sér í starfi og hvernig slíkt mat getur nýst við ákvarðanir um næstu skref í starfi eða starfsþróun. Þá var jafnframt farið yfir námsframboð hjá Mími og þau námskeið sem skólinn býður upp á í samstarfi við Eflingu. Einnig var vikið að hlutverki trúnaðarmanna sem tengiliða á vinnustöðum og mikilvægi þess að upplýsingar um þjónustu Mímis berist áfram til félagsfólks Eflingar.
Það var ánægjulegt að hitta trúnaðarmenn úr ólíkum geirum atvinnulífsins og kynna þjónustu Mímis sem stendur félagsfólki til boða.
Við þökkum Eflingu fyrir ánægjulegt samstarf og hlökkum til áframhaldandi samvinnu.








