Vinnur þú við umönnun aldraðra, fatlaðra eða við heimaþjónustu?
Viltu styrkja þig faglega og fá formlega menntun?
Félagsliðagátt er sérsniðið nám fyrir starfsfólk í heilbrigðis- og félagsþjónustu sem vill vaxa í starfi og útskrifast sem félagsliði. Þetta er leið fyrir þig til að skapa þér ný tækifæri á þessum starfsvettvangi.
Félagsliðagátt er sérsniðin námsbraut fyrir þá sem vinna við umönnun aldraðra og fatlaðra eða í heimaþjónustu. Í náminu er lögð rík áhersla á að sameina fræðilega þekkingu og hagnýta færni og að tengja námið við fjölbreytt störf í heilbrigðis- og félagsþjónustu
Í náminu er lögð áhersla á að styrkja fagvitund þína og sjálfstraust, auk þess sem þú öðlast þekkingu og skilning á:
Námið fer fram í blönduðu fjar- og staðnámi með stuðningi reyndra kennara sem auðveldar þér að samræma námið fjölskyldulífi og starfi. Einn áfangi er kenndur í einu sem gerir námið sveigjanlegt og aðgengilegt.
Þú tekur virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu og færð reglulega endurgjöf sem styður við þig jafnt persónulega sem faglega í náminu.
Hver áfangi er kenndur í fjórar vikur. Í upphafi og í lok áfanga er skyldumæting í tíma síðdegis á virkum degi. Einnig verða vinnustofur í fjarnámi þar sem nemendur hitta kennara.
1. önn
Upplýsingatækni F-UPPT2UT
Íslenska fyrir félagsliða F-ÍSLE2TT
Samvinna og samskipti F-SAMS1SS
Öldrun F-ÖLFR1ÖL
2. önn
Enska fyrir félagsliðaF-ENSK2FK
Fjölskyldan og félagsleg þjónusta F-FSFÞ2FJ
Fötlun F- FÖFR1FÞ
Gagnrýnin hugsun og siðfræði F-SIÐF2GH
Óhefðbundin samskipti F- ÓHSA2ÓS
3. önn
Aðstoð og umönnun F-ASUM2UA
Félagsleg virkni F-FÉVI2FV
Lyfjafræði F-LYFJ2LF
Stærðfræði fyrir félagsliða F-STÆR2EÆ
4. önn
Kynja- og jafnréttisfræðsla F-KYNJ2KG
Næringarfræði F-NÆRG2NF
Hegðun og atferlismótun (sálfræði) F-SÁLF2HM
Skyndihjálp F-SKYN2SP
Valgrein: Öldrun og samfélag F-ÖLFR2ÖS
Námið er fyrir þau sem starfa við umönnun aldraðra og fatlaðra eða í heimaþjónustu.
گروه هدف برای آموزشهای تکمیلی، به گفته هیئت مدیره صندوق آموزش. شرایط و ضوابط صندوق آموزش
Námið er ætlað einstaklingum sem:
ارزیابی شایستگی: Ef þú býrð yfir reynslu úr starfi við umönnun getur þú mögulega fengið hluta námsins metinn í gegnum raunfærnimat. Ef þú vilt kanna þann möguleika skaltu hafa samband við náms- og starfsráðgjafa hjá Mími. Við erum hér til að styðja við þig á námsferlinum.
Við hlökkum til að vinna með þér til að ná markmiði þínu.
مطمئن نیستید کدام دوره برای شما مناسبتر است؟ نیاز دارید تجربهها و مهارتهای خود را ارزیابی کنید؟ در میمی، ما راهنماییهای شخصی ارائه میدهیم و به شما کمک میکنیم مسیر درست را در تحصیلات یا حرفهتان بیابید.
آدرس ایمیل [email protected]
تلفن 580 1800