Á námskeiðinu stígur þú þín fyrstu og öruggu skref í að læra íslensku.
Þú færð góðan grunn í málinu og byggir upp sjálfstraust til að halda áfram að læra. Við leggjum áherslu á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
Námskeiðið Íslenska 1 fjarnám er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp grunnorðaforða daglegs máls, bæði í skilningi og tali, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Fjarnám krefst meira sjálfstæðis frá nemendum í námi. Námskeiðið er að hluta til á netinu með kennara og að hluta til sjálfsnám með stuðningi kennarans.
Íslenska 1 er byrjendanámskeið á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námskeiðið er fyrir nemendur, 18 ára og eldri, sem vilja læra íslensku. Enska er notuð sem millimál í kennslunni. Allt námsefni er rafrænt.
Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað auk aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Læra stafrófið, framburð og grunnorðaforða: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Enska er notuð sem millimál í kennslunni ef þörf krefur. Þátttakendur þurfa að kunna að lesa og skrifa latneskt letur og skilja smávegis í ensku.
Námskeiðið hentar fólki sem vill meira sjálfstæði í námi, er með grunnkunnáttu í tölvunotkun og aðgang að tölvu.
Sérsniðin lausn fyrir fjölbreytta hópa: Fyrir þau sem hafa ekki enskukunnáttu er boðið upp á Íslensku 1 – fyrri hluti (hægferð) eða námskeið fyrir sérstaka tungumálahópa þar sem kennarinn talar tungumál hópsins.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
مطمئن نیستید کدام دوره برای شما مناسبتر است؟ نیاز دارید تجربهها و مهارتهای خود را ارزیابی کنید؟ در میمی، ما راهنماییهای شخصی ارائه میدهیم و به شما کمک میکنیم مسیر درست را در تحصیلات یا حرفهتان بیابید.
آدرس ایمیل [email protected]
تلفن 580 1800