آموزش حضوری و از راه دور
نیمسال بهار ۲۰۲۷

تفسیر اجتماعی

Samfélagstúlkanám Mímis er hagnýtt nám sem styrkir stöðu þína á vinnumarkaði og opnar dyr fyrir nýjum tækifærum.

نیمسال بهار ۲۰۲۷
هوفداباکی ۹ و آموزش از راه دور
۱۱۰ ساعت.
قیمت۵۴٬۲۰۰ کرون.

تحصیل در میمی چگونه است؟

  • یک محیط یادگیری دوستانه، آرام و تشویق‌کننده
  • معلمان حرفه‌ای و باتجربه
  • روش‌های تدریس مؤثر و پویا
  • مجموعه‌ای متنوع از دوره‌ها برای همه
  • حمایت و مراقبت

Í samfélagstúlkanáminu færð þú fræðslu, þjálfun og fjölbreytt verkfæri til að sinna samfélagstúlkun á faglegan og árangursríkan hátt. Samfélagstúlkur miðlar merkingu milli aðila sem ekki tala sama tungumál án þess að taka afstöðu til málefnisins. Í náminu lærir þú um hlutverk, ábyrgð, verklag og viðfangsefni túlka. Að auki færð þú fræðslu um íslenskt samfélag og helstu stofnanir þess og færð þjálfun í að kryfja álitamál og að túlka við mismunandi aðstæður.

Samfélagstúlkur túlkar samskipti milli fólks og opinberra stofnana víðs vegar í félags-, mennta- og heilbrigðiskerfinu, í félagslegum aðstæðum, í daglegu lífi, á vinnustöðum og hjá félögum þar sem hagsmunir annarra en hans eigin eru undir.

  • Íslenskt samfélag: Þjálfaðu aðlögunarhæfni þína og dýpkaðu skilning þinn á fjölbreyttum menningarheimum innan íslensks samfélags.
  • Stofnanir í íslensku samfélagi: Fáðu innsýn í helstu stofnanir samfélagsins og hlutverk þeirra, svo sem sveitarfélög, menntastofnanir, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu.
  • Siðfræði og álitamál: Þjálfaðu hæfni þína til að greina og takast á við álitamál í fjölmenningarlegu samhengi út frá mannréttindum, jafnræði, gagnsæi og siðareglum túlka.
  • Fjölmenningarfærni: Dýpkaðu skilning þinn á ólíkum menningarheimum og auktu færni þína í að miðla merkingu milli mismunandi aðila.
  • Aðstæður og öryggi: Lærðu að leggja mat á aðstæður og að skapa umhverfi þar sem allir aðilar upplifa öryggi, virðingu og jafnræði.
  • Undirbúningur fyrir túlkun: Lærðu að skipuleggja og undirbúa verkefni út frá þörfum allra sem að málinu koma.
  • Umsýsla og þjónusta: Fáðu upplýsingar og verkfæri fyrir þjónustu þína út frá faglegri framkvæmd og umsýslu.
  • Túlkunartækni: Þjálfaðu túlkunartækni til að tryggja nákvæm og hlutlaus samskipti milli tungumála og menningarheima þar sem fagmennska og virðing er í forgrunni.

Námið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem hefur góða þekkingu á tveimur eða fleiri tungumálum, menningarheimum og siðvenjum og vill starfa sem samfélagstúlkar og hefur þá hæfni sem þarf til að takast á við alla hluta námsins. Nánari upplýsingar um hæfni má nálgast á vef: https://frae.is/namskra/allar-namskrar/

گروه هدف برای آموزش‌های تکمیلی، به گفته هیئت مدیره صندوق آموزش. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs.

Til að taka þátt í náminu og til að tryggja sem bestan námsárangur þurfa nemendur að hafa færni á stigi B1.1 í íslensku samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Þú getur skoðað rammann betur hér.

  • Námsmat byggist á mætingu, verkefnavinnu og virkri þátttöku í náminu.
  • Til að ljúka námsbrautinni og útskrifaster nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
  • Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. تمام برنامه‌های درسی را می‌توانید از اینجا دسترسی پیدا کنید.
  • Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði til að jafna aðgengi og efla nám fyrir fullorðna.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.

کمک می‌خواهید؟

مطمئن نیستید کدام دوره برای شما مناسب‌تر است؟ نیاز دارید تجربه‌ها و مهارت‌های خود را ارزیابی کنید؟ در میمی، ما راهنمایی‌های شخصی ارائه می‌دهیم و به شما کمک می‌کنیم مسیر درست را در تحصیلات یا حرفه‌تان بیابید.

آدرس ایمیل [email protected]

تلفن 580 1800

نصیحت در میمیر

لایت