14. آوریل 2026 - 19. مه 2026
Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra spænsku.
Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning og tal auk þess að byggja upp sjálfstraust til að vaxa og blómstra í tungumálinu.
14. آوریل 2026 - 19. مه 2026
Námskeiðið er ætlað byrjendum í spænsku og á því er lögð áhersla á hagnýtar aðferðir til að þú getir strax tjáð þig. Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa færni í samskiptum.
Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun. Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti er sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
Að læra að tjá þig með einföldum hætti til að bjarga þér í daglegu lífi
Að byggja upp traustan grunnorðaforða sem styður við frekara nám
Að kynnast menningu og lífsháttum spænskumælandi landa sem opnar nýjar leiðir í samskiptum
Að læra undirstöðuatriði í málfræði sem eru fléttuð við efni námskeiðsins á skýran hátt
Við lok námskeiðsins muntu geta átt einföld samskipti á spænsku og búa yfir hagnýtum orðaforða.
Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Allt námsefni er á rafrænu formi.
Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun og aðgangs að tölvu.
Þátttaka krefst sjálfstæðis í námi.
Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti er sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800