1. Bal 2026 - 18. Bir 2026
Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra ítölsku og byrja að tala ítölsku.
1. Bal 2026 - 18. Bir 2026
Vingjarnlegt, afslappað og hvetjandi námsumhverfi
Faglegir og reyndir kennarar
Skilvirkar og lifandi kennsluaðferðir
Fjölbreytt nám við allra hæfi
Á þessu námskeiði tekur þú stig 1 og 2 saman.
Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning og tal auk þess sem þú byggir upp orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt.
Þú færð sjálfstraust til að vaxa og blómstra í tungumálinu.
Að læra að tjá þig og eiga samskipti á ítölsku í daglegu lífi
Að byggja upp grunnorðaforða sem styður við frekara nám og nýtist vel í daglegu lífi
Að læra undirstöðuatriði í málfræði á hagnýtan hátt
Að kynnast menningu og lífsháttum Ítala og ítölskumælandi landa
Við lok námskeiðsins muntu búa yfir færni til að eiga einföld samskipti á ítölsku og nota hagnýtan orðaforða.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.
Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800