Námskeiðið er gott upphaf til að byrja að læra íslensku og þjálfa lestur og skrift.
Þú byggir upp sjálfstraust til að halda áfram að læra. Á námskeiðinu færð þú tækifæri til að læra íslensku hægt og rólega í öruggu og styðjandi námsumhverfi.
Námskeiðið Skaitymas ir rašymas islandų kalba er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku, vilt læra hægar og þarft þjálfun í að lesa og skrifa latneska stafrófið. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að læra vel íslenska stafrófið og þjálfa framburð auk þess að læra grunnorðaforða daglegs máls og einfalda setningagerð.
Á námskeiðinu er notað fjölbreytt efni og ólíkar leiðir til að æfa alla þætti tungumálanáms. Þessir þættir eru skilningur, lestur, skrift og talþjálfun með áherslu íslensku í daglegu lífi og sjálfsstyrkingu til að halda áfram að læra tungumálið.
Þjálfun í rafrænni færni er hluti af námskeiðinu þar sem þú færð upplýsingar um og tækifæri til að nota hagnýtar vefsíður og smáforrit með tölvum og snjallsímum. Fræðslu um íslenskt samfélag er fléttað inn í námskeiðið eftir því sem hentar hópnum.
Kennarinn notar einfalda kennslu til útskýringa eftir þörfum.
Námskeiðið er kennt á einfaldri ensku og íslensku.
Að lesa og skrifa á íslensku er nám á fyrsta þrepi hæfniramma um íslenskt menntakerfi og er byrjendanámskeið í íslensku á forstigi og á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað að hluta auk sérhæfðs efnis til þjálfunar í framburði, lestrar- og skriftarkennslu, myndefnis, leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi. Einnig efnið Orð eru ævintýri – rafbók | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Læra stafrófið og framburð: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku og þjálfun í íslenska hljóðkerfinu.
Þú byggir upp grunnorðaforða með því að nota myndir og orð á áhrifaríkan hátt.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.
Þú færð þjálfun í grunnatriðum í lestri og skrift einfaldra orða og setninga. Þú æfir einnig að skrifa einföld orð og grunn persónupplýsingar á rafrænan máta.
Þú æfir þig að nota hagnýtar vefsíður og smáforrit með tölvum og snjallsímum.
Málfræði er kynnt á mjög einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
*Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.
Námskeiðið er fyrir fólk, 20 ára og eldra, sem vill læra íslensku, hefur litla skólagöngu og/eða er illa læst á latneskt letur.*
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs
Švietimo fondo taisyklės ir sąlygos
*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að verða fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.
Námsmat byggist á mætingu, símati og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
Kursą subsidijuoja Švietimo fondas, siekdamas užtikrinti lygias galimybes ir skatinti suaugusiųjų mokymąsi.
Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. https://frae.is/namskra/allar-namskrar/
Námið jafngildir allt að 5 framhaldsskólaeiningum. Skólastjórnendur hvers skóla eru ábyrgir fyrir mati skólans á námi frá öðrum fræðslustofnunum.
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Nežinote, kuris kursas jums tiktų geriausiai? Norite įvertinti savo patirtį ir įgūdžius? „Mími“ siūlome individualias konsultacijas ir padėsime jums rasti tinkamą kelią studijose ar karjeroje.
El. pašto adresas [email protected]
Telefonas 580 1800