Ensino à distância
Vorönn 2026

islandês

Íslenska 4 fjarnám (A2.2)

Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku. Þú bætir við þig fjölbreyttum orðaforða og eflir sjálfstraustið til að nota íslensku á margvíslegan máta. Við leggjum áherslu á skilning, lestur, ritun og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.

Ensino à distância
40 klst.
Preço59 500 coroas.

Námskeið framundan

Heiti Dagar Dags. Tími Staðsetning Preço
Icelandic flag
Íslenska 4 fjarnám
Mán og mið 13. Abr 2026 - 24. Jun 2026 17:10 - 19:20 Ensino à distância 59 500 coroas. Inscreva-me

Como é estudar na Mími?

  • Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið Íslenska 4 er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumáls, það er lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.

Íslenska 4 er framhaldsnámskeið á stigi A2.2 samkvæmt O Quadro Europeu de Referência para as Línguas. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 4 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.

 

Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum.

Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.

Þú kynnist og notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.

Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.

Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.**

Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2 og 3 (120 klukkustundir) eða sambærileg þekking.

Á fjórða stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

  • Ókeypis stöðumat fyrir skráða nemendur: Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
  • Mætingarskylda: Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
  • Námskeiðshald: Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
  • Námskrá: Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Precisa de ajuda?

Não sabe qual é o curso mais adequado para si? Precisa de avaliar a sua experiência e competências? Na Mími, oferecemos orientação personalizada e ajudamo-lo a encontrar o caminho certo nos seus estudos ou na sua carreira.

Endereço de e-mail [email protected]

Telefone 580 1800

Conselhos na Mímir

Leit