7 de abril de 2026 - 23 de junho de 2026
Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra spænsku og byrja að tala spænsku!
Á þessu námskeiði tekur þú saman stig 1 og 2.
Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning og tal auk þess að byggja upp hagnýtan orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt. Þú færð sjálfstraust til að vaxa og blómstra í tungumálinu.
7 de abril de 2026 - 23 de junho de 2026
Námskeiðið er ætlað byrjendum í spænsku og á því er lögð áhersla á hagnýtar aðferðir til að þú getir strax tjáð sig.
Á þessu námskeiði lærir þú bæði stig 1 og 2. Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa undirstöðuatriði í málfræði á fjölbreyttan hátt með áherslu á talað mál og samskipti á spænsku.
Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun. Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
Að læra að tjá þig með einföldum hætti og eiga samskipti á spænsku
Að byggja upp traustan grunnorðaforða sem styður við frekara nám og nýtist í daglegu lífi
Að kynnast menningu og lífsháttum spænskumælandi landa
Að læra og þjálfa undirstöðuatriði í málfræði á hagnýtan hátt
Við lok námskeiðsins muntu geta átt einföld samskipti á spænsku og búa yfir og geta notað hagnýtan orðaforða.
Kennarinn notar íslensku til útskýringar í kennslunni.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Allt námsefni er á rafrænu formi.
Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun og aðgangs að tölvu.
Þátttaka krefst sjálfstæðis í námi.
Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.
Não sabe qual é o curso mais adequado para si? Precisa de avaliar a sua experiência e competências? Na Mími, oferecemos orientação personalizada e ajudamo-lo a encontrar o caminho certo nos seus estudos ou na sua carreira.
Endereço de e-mail [email protected]
Telefone 580 1800