Tveggja daga faglegt námskeið fyrir íþróttakennara í grunnskólum
Viltu endurnýja og stækka verkfærakistu þína með nýjum og fjölbreyttum kennsluaðferðum sem auka gleði og árangur nemenda þinna í íþróttum?
Námskeiðið er fyrir íþróttakennara í grunnskólum sem vilja læra nýjar og fjölbreyttar kennsluaðferðir sem hvetja til þátttöku allra nemenda og auka gæði íþróttakennslunnar.
Á námskeiðinu lærir þú:
fjölda nýrra leikja og æfinga fyrir aldurshópinn 6-16 ára
hagnýtar kennsluaðferðir í íþróttagreinum (körfubolta, handbolta, fimleikum)
aðferðir til að aðlaga æfingar að ólíku getu- og áhugasviði nemenda
um fjölbreytta notkun áhalda (húllahringir, baunapokar, sippubönd o.fl.)
Að auki færð þú:
fjölbreyttar hugmyndir að eltinga- og skotleikjum
tækifæri til að skiptast á reynslu og hugmyndum við aðra kennara
bækling með öllu efni sem kennt er á námskeiðinu
Íþróttakennara á grunnskólastigi (1.-10. bekkur)
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.
Не знаете, какой курс вам лучше всего подойдет? Хотите оценить свой опыт и навыки? В Mími мы предлагаем индивидуальное консультирование и поможем вам выбрать правильный путь в обучении или карьере.
Адрес электронной почты [email protected]
Телефон 580 1800