Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku.
Þú bætir við þig fjölbreyttum orðaforða og eflir sjálfstraust þitt til að nota tungumálið. Við leggjum áherslu á skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
Námskeiðið Íslenska 3 er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, það er skilning, lestur, ritun og talþjálfun með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Íslenska 3 er framhaldsnámskeið á stigi A2.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 3 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsmálum og þörfum þínum.
Þú lærir um og notar ýmsar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt í að tala íslensku.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir setningar bæði í samtölum og frásögn.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kynnt og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og það sem þú hefur þegar lært.*
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku.
Undanfari er Íslenska 1 og 2 (80 klukkustundir) eða sambærileg þekking.
Á þriðja stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Не знаете, какой курс вам лучше всего подойдет? Хотите оценить свой опыт и навыки? В Mími мы предлагаем индивидуальное консультирование и поможем вам выбрать правильный путь в обучении или карьере.
Адрес электронной почты [email protected]
Телефон 580 1800