Ég veiti ráðgjöf við námsval, stuðning og ráðgjöf í námi. Ég aðstoða einstaklinga við að átta sig á eigin styrkleikum, að efla sjálfstraust og trú á eigin getu til að ná settum markmiðum í námi eða starfi. Ég veiti aðstoð við starfsþróun, gerð ferilskráa, kynningarbréfa og undirbúning fyrir atvinnuviðtöl.
Starfsreynsla og menntun
- Ég hóf störf hjá Mími-símenntun 2025.
- Ég hef mikla reynslu sem náms- og starfsráðgjafi.
- Mín sérgrein er atvinnuleit og starfsþróun en ég hef einnig veitt ráðgjöf í fullorðinsfræðslu og starfað sem mannauðsráðgjafi.
- MA gráða í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ
- Diplóma í uppeldis- og menntunarfræði frá HÍ
- BA gráða í félagsfræði frá HÍ
- Leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi
- Réttindi til að leggja fyrir raunfærnimat