
Этой осенью продолжается строительство в крыле для персонала
Kennsla, námskeið og önnur starfsemi Mímis verða áfram í fullum gangi á meðan á framkvæmdum stendur í húsnæði Mímis að Höfðabakka 9. Framkvæmdirnar hafa ekki áhrif á kennslurými og nemendur, ráðþegar, kennarar og aðrir viðskiptavinir geta því áfram sótt þjónustu og nám hjá Mími með eðlilegum hætti.
Á haustmánuðum munu halda áfram framkvæmdir við endurnýjun og breytingar á starfsmannaálmu Mímis. Um er að ræða umfangsmiklar umbætur sem fela meðal annars í sér endurnýjun vinnuaðstöðu starfsfólks, nýja funda- og viðtalsaðstöðu, uppfærslu á loftgæðum, lýsingu og yfirborðsefnum, auk annarra breytinga sem ætlað er að bæta starfsumhverfi og aðstöðu til framtíðar.
Á meðan framkvæmdum stendur munu viðtöl hjá náms- og starfsráðgjöfum að hluta fara fram í fjarviðtölum og tímabundnar breytingar kunna að verða á staðsetningu starfsfólks innan hússins. Gestir og viðskiptavinir verða upplýstir um slíkar breytingar eftir því sem þörf krefur.
Framkvæmdirnar eru liður í heildstæðum endurbótum á starfsmannaaðstöðu Mímis með það að markmiði að bæta vinnuaðstöðu starfsfólks og skapa nútímalegt, öruggt og hagkvæmt vinnuumhverfi sem styður vel við starfsemi Mímis til framtíðar.
Við þökkum starfsfólki, nemendum, ráðþegum, kennurum og öðrum samstarfsaðilum fyrir sýndan skilning og þolinmæði á meðan á framkvæmdum stendur.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Mími í síma 540 7500 eða með tölvupósti á [email protected].







