Reynsla og gæði
Hjá Mími er áralöng reynsla af íslenskukennslu fyrir starfsfólk af erlendum uppruna. Námskeið hafa verið haldin í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir með góðum árangri frá árinu 2003.
Íslenskunámskeiðin eru markviss og árangursrík og markmiðið er ávallt að koma til móts við þarfir bæði vinnustaða og starfsfólks. Áhersla er lögð á talþjálfun, aukin samskipti á íslensku á vinnustaðnum, starfstengt námsefni og fjölbreytta kennsluhætti.
Meðal viðskiptavina Mímis um íslenskunámskeið á vinnustað eru: Landspítalinn, Reykjavíkurborg, hjúkrunarheimili og Alþingi.
Til að fá frekari upplýsingar og tilboð í íslenskunámskeið á vinnustaðnum: [email protected]
Ávinningur fyrirtækja
Ávinningur fyrirtækja af því að efla íslenskukunnáttu meðal starfsfólks er margvíslegur. Þar ber helst að nefna aukna starfsánægju и samskipti innbyrðis, minni starfsmannaveltu и upplýstara starfsfólk sem aftur hefur jákvæð áhrif á lífsgæði starfsmanna. Öryggi á vinnustöðum, til dæmis hvað varðar störf í umönnun, eykst með aukinni íslenskukunnáttu starfsfólks. Þá felst ávinningur í því að bæta almenn samskipti starfsfólks og viðskiptavina sem og að auka skilvirkni í samskiptum starfsmanna við yfirmenn og stjórnendur.
Starfstengt íslenskunám
Námskeiðin eru ætíð sniðin að þörfum vinnustaðarins. Sérfræðingur frá Mími greinir þarfir hans fyrir íslenskukennslu og skilgreinir markmið og áherslur í náminu í samvinnu við vinnustaðinn.
Mat á stöðu starfsmanna í íslensku fer fram í upphafi og við lok námskeiðs. Þá hefur starfsfólk aðgang að náms- og starfsráðgjafa meðan á náminu stendur. Í lok námskeiðs fer fram rafrænt mat á námskeiðinu og niðurstöðum skilað til vinnustaðarins ásamt viðurkenningum sem staðfesta þátttöku. Námskeiðin geta farið fram á vinnustaðnum eða í húsnæði Mímis.
Þjónusta við fyrirtæki
Mímir býður fyrirtækjum og stofnunum ýmiss konar þjónustu við að efla starfsfólk sitt í íslensku og auka veg íslensku sem samskiptamáli á vinnustaðnum. Fyrirtækjum býðst að gera samstarfssamninga við Mími sem miðast við ákveðið tímabil og þjónustu og/eða kaupa stök námskeið. Mímir sækir um niðurgreiðslu til mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna íslenskunámskeiða. Þá geta fyrirtæki leitað í starfsmenntasjóði um styrki til námsins.
Есть вопросы?
Hjá Mími eru allar spurningar kærkomnar, taktu upp símann og hringdu, sendu póst eða komdu í heimsókn.
Адрес электронной почты [email protected]
Телефон 580-1800