
การทบทวนผู้บริหารประจำปี 2026
Á dögunum var haldinn vel heppnaður rýnifundur stjórnenda þar sem gæðastjóri fór yfir árangur og helstu umbótatækifæri í starfsemi Mímis. Niðurstöður fundarins sýna að gæði í starfinu hafa aukist og að árangurinn styður við áframhaldandi þróun og frekari gæði á öllum sviðum þjónustunnar.
Ákveðið var að halda áfram að styrkja starfsemina í samræmi við gæðastaðalinn ISO 9001. Eftir sem áður tekur starfsemin mið af EQM og EQM+ gæðavottun fræðsluaðila en horft er til ISO 9001 staðalsins hvað varðar það sem EQM og EQM+ nær ekki yfir. Gæðateymi Mímis mun vinna áfram að þróun gæðakerfisins með áherslu á stöðugar umbætur í starfseminni.
Á myndinni eru Bryndís Bessadóttir gæðastjóri og Jóhanna Steinunn Snorradóttir mannauðsfulltrúi ásamt framkvæmdastjórn Mímis, þeim Jóhanni Erni B. Benediktssyni, Maríu Stefaníu Stefánsdóttur, Sólveigu Hildi Björnsdóttur, Kristínu Erlu Þráinsdóttur og Sólrúnu Helgu Guðmundsdóttur.







