Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku. Þú bætir við þig fjölbreyttum orðaforða og eflir sjálfstraustið til að nota íslensku á margvíslegan máta. Við leggjum áherslu á skilning, lestur, ritun og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
Námskeiðið Íslenska 4 er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumáls, það er lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Íslenska 4 er framhaldsnámskeið á stigi A2.2 samkvæmt กรอบมาตรฐานยุโรปสำหรับภาษา. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 4 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
Þú kynnist og notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.**
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2 og 3 (120 klukkustundir) eða sambærileg þekking.
Á fjórða stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
ไม่แน่ใจว่าจะเลือกหลักสูตรไหนดีที่สุดสำหรับคุณ? ต้องการประเมินประสบการณ์และทักษะของคุณหรือไม่? ที่ Mími เรามีคำแนะนำส่วนบุคคลและช่วยให้คุณค้นหาเส้นทางที่เหมาะสมในการเรียนหรืออาชีพของคุณ.
ที่อยู่อีเมล [email protected]
โทรศัพท์ 580 1800