การจัดวางตำแหน่ง
Vorönn 2026

ไอซ์แลนด์

Íslenska 6 (B1.2)

Námskeiðið Íslenska 6 er sérsniðið fyrir þig sem hefur lokið stigi 5 með góðum árangri eða hefur sambærilega færni í íslensku.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja áfram upp fjölbreyttan orðaforða. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, þ.e. lestur, ritun, málfræðinotkun, skilning og talþjálfun í samræmi við þínar þarfir.

Námskeið framundan

Heiti Dagar Dags. Tími Staðsetning ราคา
Íslenska 6
Þri og fim 26. มี.ค. 2026 - 11. มิ.ย. 2026 19:40 - 21:50 การจัดวางตำแหน่ง 59,500 โครน. ลงทะเบียนให้ฉัน

Vala S. Valdimarsdóttir

[email protected]
ผู้จัดการโครงการ

Hvernig er að læra í Mími?

• Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
• Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
• Árangursríkar og skemmtilegar kennsluaðferðir.
• Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
• Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið er einstaklingsmiðað að hluta. Það er byggt á lestri texta, gagnvirkum æfingum, verkefnaskilum og netspjalli við kennarann, auk hópavinnu nemenda.

Íslenska 6 er framhaldsnámskeið á stigi B 1.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Það byggir á völdum textum og verkefnum auk efnis af neti og samfélagsmiðlum í samræmi við áhuga og þarfir nemenda.

• Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þínum þörfum.
• Við leggjum áherslu á talþjálfun og að þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
• Þú notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku, tjá skoðanir þínar og taka þátt í umræðum.
• Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
• Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.
• Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

 

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2, 3, 4 og 5 (200  klukkustundir) eða sambærileg þekking.

Á sjötta stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.

Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.

Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected]
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

หลักสูตรที่คล้ายกัน

ดูหลักสูตรทั้งหมดของ Mímir

คุณต้องการความช่วยเหลือหรือไม่

ไม่แน่ใจว่าจะเลือกหลักสูตรไหนดีที่สุดสำหรับคุณ? ต้องการประเมินประสบการณ์และทักษะของคุณหรือไม่? ที่ Mími เรามีคำแนะนำส่วนบุคคลและช่วยให้คุณค้นหาเส้นทางที่เหมาะสมในการเรียนหรืออาชีพของคุณ.

ที่อยู่อีเมล [email protected]

โทรศัพท์ 580 1800

คำแนะนำที่มิเมียร์

Leit

โฮฟดาบักกิ 9

110 กรุงเรคยาวิก

580 1800

[email protected]

เลขที่ 701202-3920