พนักงานของ Mímis กำลังเข้าร่วมกิจกรรมวิ่งเพื่อชีวิต

Starfsfólk Mímis tekur þessa dagana þátt í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins, sem er heilsu- og hvatningarverkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Í Lífshlaupinu eru landsmenn hvattir til að sinna daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er.

Starfsfólk Mímis hefur hvatt hvert annað áfram í verkefninu og í dag fóru nokkrir starfsmenn saman í hressandi göngu í kringum Grafarvoginn í rigningu og smá roki. Lífshlaupið er skemmtilegt og uppbyggilegt hópefli sem styrkir jákvæðan starfsanda.

Við hvetjum öll til að fara út, njóta „góða“ veðursins og fá ferskt loft í lungun.

Leit

โฮฟดาบักกิ 9

110 กรุงเรคยาวิก

580 1800

[email protected]

เลขที่ 701202-3920