Дистанційне навчання
Осінній семестр 2026 року

Úkraínska ісландська

Íslenska 1 og atvinnulíf (A1.1) – Fjarnám

Á námskeiðinu stígur þú þín fyrstu og  öruggu skref í að læra íslensku. Þú færð góðan grunn í málinu og byggir upp sjálfstraust til að halda áfram að læra tungumálið.  

Við leggjum áherslu á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.    Á námskeiðinu færð þú einnig fræðslu um íslenskt atvinnulíf.  

Осінній семестр 2026 року
Дистанційне навчання
Kennarinn talar úkraínsku
58 klst.
Ціна28.600 kr.

Hvernig er að læra í Mími?

Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.

Vingjarnlegir og faglegir kennarar.

Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.

Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.

Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið Íslenska og atvinnulíf er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp grunnorðaforða daglegs máls, bæði í skilningi og tali, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.  Hluti af námskeiðinu er fræðsla um íslenskt atvinnulíf, meðal annars réttindi og skyldur bæði vinnuveitenda og starfsmanna.

Námskeiðið skiptist í 42 klukkustundir af íslenskunámi og 16 klukkustundum af fræðslu um atvinnulífið, alls 58 klukkustundir.

Íslenskunámið er byrjendanámskeið í íslensku  á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.

Í atvinnulífshluta námskeiðsins er stuðst við fjölbreytt efni af opinberum vefsíðum sem tengjast efninu.

Kennarinn talar úkraínsku.

Námskeiðið er kennt á úkraínsku og íslensku.

Læra stafrófið, framburð og grunnorðaforða: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku.

Við leggjum áherslu á  talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.

Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.

Málfræðin er kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.**

Íslenskt atvinnulíf og vinnuumhverfi, sérstaklega réttindi og skyldur vinnuveitenda og starfsmanna, er kynnt.

Þú færð fræðslu og þjálfun í árangursríkum samskiptum fyrir samstarf og samvinnu.

Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að verða fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.

**Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku, fræðast um íslenskt atvinnulíf og efla sig í góðum samskiptum. Þátttakendur þurfa að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs

Умови та положення Освітнього фонду

Námsmat byggist á mætingu, símati og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.

Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.

Цей курс фінансується Фондом освіти з метою забезпечення рівного доступу до освіти та сприяння навчанню дорослих.

Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. Allar námskrár FA má nálgast hér

Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Інше: Для осіб, які прибувають з країн, що не входять до ЄЕЗ: Однією з умов, встановлених Імміграційною службою для отримання дозволу на постійне проживання в Ісландії, є проходження 150 годин викладання або 120 годин вивчення ісландської мови. Не має значення, чи проходять ви курси різних рівнів або повторюєте рівні.

Вам потрібна допомога?

Не впевнені, який курс вам підійде найкраще? Хочете оцінити свій досвід і навички? У Mími ми пропонуємо індивідуальне консультування та допоможемо вам обрати правильний шлях у навчанні чи кар’єрі.

Адреса електронної пошти [email protected]

Телефон 580 1800

Поради від Mímir

Лейт.