Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að öðlast traustan grunn í ensku og fá sjálfstraust til að læra meira. Á námskeiðinu byggir þú upp grunnorðaforða og færð þjálfun í að tala ensku.
Þetta námskeið er hannað fyrir þig ef þú hefur litla eða enga fyrri þekkingu í ensku. Markmiðið er að þjálfa færni í daglegum samskiptum á ensku.
Þú þarft að búa yfir grunnfærni í tölvunotkun. Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti er sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
Þú færð þjálfun í að tjá þig á einfaldan hátt og bjarga þér í daglegu lífi.
Grunnorðaforða og undirstöðuatriði í málfræði sem er fléttað við efni námskeiðsins á skýran hátt.
Þú byggir upp traustan grunnorðaforða og eflir sjálfstraustið til að læra meira
Þú færð innsýn í ólíkan hreim og menningarheima enskumælandi landa.
Í lok námskeiðsins getur þú átt í einföldum samræðum sem tengjast daglegum aðstæðum.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Allt námsefni er á rafrænu formi.
Þátttaka krefst grunnfærni í tölvunotkun og aðgang að tölvu.
Þátttaka krefst ákveðins sjálfstæðis í námi.
Kennt er á ensku та íslensku.
Hluti námsins er fjarnám með kennara og hluti er sjálfsnám með stuðningi frá kennara.
Það er nauðsynlegt að ná 75% mætingu til að fá skírteini við lok námskeiðsins. Þetta tryggir líka að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugaðu að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir því að námskeið verði haldið.
Не впевнені, який курс вам підійде найкраще? Хочете оцінити свій досвід і навички? У Mími ми пропонуємо індивідуальне консультування та допоможемо вам обрати правильний шлях у навчанні чи кар’єрі.
Адреса електронної пошти [email protected]
Телефон 580 1800