Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku. Þú bætir við þig fjölbreyttum orðaforða og eflir sjálfstraustið til að nota íslensku á margvíslegan máta. Við leggjum áherslu á skilning, lestur, ritun og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
Námskeiðið Íslenska 4 er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumáls, það er lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Íslenska 4 er framhaldsnámskeið á stigi A2.2 samkvæmt Європейська рамкова програма з мов. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 4 er notað auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
Þú kynnist og notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.**
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2 og 3 (120 klukkustundir) eða sambærileg þekking.
Á fjórða stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Інше: Для осіб, які прибувають з країн, що не входять до ЄЕЗ: Однією з умов, встановлених Імміграційною службою для отримання дозволу на постійне проживання в Ісландії, є проходження 150 годин викладання або 120 годин вивчення ісландської мови. Не має значення, чи проходять ви курси різних рівнів або повторюєте рівні.
Не впевнені, який курс вам підійде найкраще? Хочете оцінити свій досвід і навички? У Mími ми пропонуємо індивідуальне консультування та допоможемо вам обрати правильний шлях у навчанні чи кар’єрі.
Адреса електронної пошти [email protected]
Телефон 580 1800