Á námskeiðinu heldur þú áfram að bæta við íslenskuþekkingu þína.
Þú eykur fjölbreyttan orðaforða og eflir sjálfstraustið til að nota íslensku á ýmsan hátt. Við leggjum áherslu á skilning, lestur, ritun og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
Námskeiðið Íslenska 5 er sérsniðið fyrir þig sem hefur lokið stigi 4 með góðum árangri.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja áfram upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, þ.e. lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Íslenska 5 er framhaldsnámskeið á stigi B 1.1 samkvæmt Європейська рамкова програма з мов . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Heftið Íslenska fyrir 5. stig er notað, auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og að þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
Þú notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.**
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2, 3 og 4 (160 klukkustundir) eða sambærileg þekking.
Á fimmta stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Інше: Для осіб, які прибувають з країн, що не входять до ЄЕЗ: Однією з умов, встановлених Імміграційною службою для отримання дозволу на постійне проживання в Ісландії, є проходження 150 годин викладання або 120 годин вивчення ісландської мови. Не має значення, чи проходять ви курси різних рівнів або повторюєте рівні.
Не впевнені, який курс вам підійде найкраще? Хочете оцінити свій досвід і навички? У Mími ми пропонуємо індивідуальне консультування та допоможемо вам обрати правильний шлях у навчанні чи кар’єрі.
Адреса електронної пошти [email protected]
Телефон 580 1800