Позиціонування
Осінній семестр 2026 року

ісландська

Ісландська мова для працівників сфери догляду та медсестер (A1.2–A2.1)

Viltu vinna við umönnun eða hjúkrun en þarft að bæta íslenskukunnáttu þína?

Á námskeiðinu nærð þú betri tökum á að tala og skilja íslensku. Með markvissum æfingum og þjálfun eykur þú færni þína í að tala íslensku, sérstaklega í samskiptum á sjúkrastofnunum, á hjúkrunarheimilum eða í heimahjúkrun.

Осінній семестр 2026 року
Хефдабаккі, 9
40 годин.
Ціна59 500 крон.

Hvernig er að læra í Mími?

  • Afslappað og hlýlegt andrúmsloft sem býður öll velkomin!
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið er framhaldsnámskeið á stigi A1.2-A2.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum*. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt og hagnýtt námsefni og lögð áhersla virka þátttöku nemenda. Þannig verður íslenskunámið bæði árangursríkt og skemmtilegt.

*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að vera fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.

Þú lærir og þjálfar orðaforða og orðasambönd sem tengjast raunverulegum aðstæðum við störf í umönnun og hjúkrun.

Þú verður öruggari í samskiptum á íslensku, hvort sem það er í samtölum við sjúklinga og íbúa hjúkrunarheimila eða samstarfsfólk.

Þú þjálfar skýran framburð á íslensku.

Hagnýt málfræðiatriði sem tengjast viðfangsefninu eru hluti af námsefninu og þjálfuð í samskiptum.*

*Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku.

Undanfari er að minnsta kosti Íslenska 1 og 2 (80 klukkustundir) eða sambærileg kunnátta.

Námskeiðið er kennt á íslensku. Þátttakendur verða að geta tjáð sig á einfaldan hátt á íslensku og kunna grunnatriði í málinu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.

Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.

Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Інше: Для осіб, які прибувають з країн, що не входять до ЄЕЗ: Однією з умов, встановлених Імміграційною службою для отримання дозволу на постійне проживання в Ісландії, є проходження 150 годин викладання або 120 годин вивчення ісландської мови. Не має значення, чи проходять ви курси різних рівнів або повторюєте рівні.

Вам потрібна допомога?

Не впевнені, який курс вам підійде найкраще? Хочете оцінити свій досвід і навички? У Mími ми пропонуємо індивідуальне консультування та допоможемо вам обрати правильний шлях у навчанні чи кар’єрі.

Адреса електронної пошти [email protected]

Телефон 580 1800

Поради від Mímir

Лейт.