Проєкт BRICK завершив перший рік своєї діяльності.

Mímir er samstarfsaðili í Erasmus+ verkefninu BRICK, ásamt Frakklandi og Ítalíu, undir stjórn Fondazione ISMU í Mílanó. Markmið verkefnisins er að styrkja hæfni innflytjenda og auka tækifæri þeirra á vinnumarkaði með þróun starfstengdrar tungumálakennslu sem tengir saman tungumálafærni, öryggi í starfi og stafræna og græna færni.

Nú er fyrsta starfsári verkefnisins lokið og á þeim tíma hefur náðst umtalsverður árangur í að efla hæfni og þátttöku innflytjenda á vinnumarkaði. Meðal verkefna á tímabilinu var Training4Trainers námskeið með þátttöku sjö íslenskukennara sem var haldið hjá Mími. Áhersla var lögð á kennsluaðferðir í starfstengdri íslensku og kennslu á BRICK-tengdu efni, svo sem gæðum og öryggi á vinnustað, auk grænnar og stafrænnar færni.

Jafnframt voru haldin tvö tilraunarnámskeið sem hluti af verkefninu. Annað þeirra var sjálfstætt BRICK-námskeið en í hinu var BRICK-efni samþætt við umönnunarsmiðju hjá Mími. Í báðum tilvikum var lögð áhersla á að tengja íslenskunám við raunverulegar aðstæður á vinnustöðum og efla þekkingu á öryggi og heilsu á vinnustað, auk stafrænnar og grænnar færni. Alls tóku 27 nemendur þátt í námskeiðunum tveimur.

Þá var einnig boðið upp á einstaklingsmiðaða þjálfun fyrir fjóra þátttakendur á tímabilinu febrúar til maí 2026.

Frekari upplýsingar um verkefnið má finna тут.

Seinni hluti Bricks verkefnisins hefst á haustönn 2026 og beinist að miðlun niðurstaðna, kynningu verkefnisins og samstarfi við hagsmunaaðila.

Хефдабаккі, 9

110 Рейк'явік

580 1800

[email protected]

кт. 701202-3920

 

Години роботи

Літній графік роботи: будні дні з 8:00 до 15:30

Лейт.