
Візит до Вік-і-Мюрдала — фокус-групові інтерв’ю та аналіз потреб
Dagana 5.–8. maí sl. fóru Sandra Björg Ernudóttir, verkefnastjóri og María Stefanía Stefánsdóttir, fagstjóri íslenskunáms hjá Mími, í heimsókn til Víkur í Mýrdal sem þátt í þróunarverkefni um íslenskukennslu og inngildingu í Mýrdalshreppi. Verkefnið er styrkt af þróunarsjóði innflytjendamála.
Í heimsókninni voru tekin rýnihópaviðtöl við fulltrúa fyrirtækja og stofnana á svæðinu. Markmið viðtalanna var að fá betri innsýn í íslenskukunnáttu og notkun íslensku á vinnustöðum, greina helstu áskoranir og kortleggja þarfir starfsfólks og stjórnenda hvað varðar stöðu íslensku á vinnustöðum.
Heimsóknin var hluti af þarfagreiningu verkefnisins og munu niðurstöður hennar nýtast við þróun leiðarvísis og verkfærakistu með hagnýtum lausnum sem styðja við aukna notkun íslensku og inngildingu á vinnustöðum.
Mímir þakkar öllum þeim sem tóku þátt fyrir góðar móttökur og verðmæta innsýn í líf, störf og áskoranir fólks í Mýrdalshreppi.








