
У червні в лікарні «Ландспіталінн» завершилися сім курсів ісландської мови.
Í júní lauk sjö íslenskunámskeiðum á Landspítalanum. Alls voru 113 þátttakendur skráðir í námskeiðin sem voru kennd á mismunandi stigum (stigi 1–3) ásamt blönduðum hópum. Þátttakendur náðu glæsilegum árangri og því var mikið tilefni til að fagna.
Þetta var önnur lota vorsins en í þeirri fyrri, sem stóð frá janúar til mars, voru haldin alls átta námskeið. Námskeiðin fóru öll fram á Landspítalanum og voru sérstaklega sniðin að starfstengdri íslensku með það að markmiði að styðja þátttakendur í daglegum samskiptum í starfi.
Við óskum öllum sem luku námskeiðunum innilega til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir góða þátttöku.
Á meðfylgjandi mynd má sjá útskriftarnemendur úr námskeiðinu Íslenska 3.








