Verkefnastjórar Mímis á vinnustofu um raunfærnimat

Fjórir verkefnastjórar Mímis tóku þátt í vinnustofu verkefnastjóra í raunfærnimati sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) stóð fyrir 27. ágúst sl. Á vinnustofunni komu saman verkefnastjórar og samstarfsaðilar víðs vegar af landinu til að ræða stöðu raunfærnimats og næstu skref í þróun þess.

Á vinnustofunni var lögð áhersla á samstarf, þjónustu við þátttakendur og framtíðarþróun raunfærnimats. Kynntar voru niðurstöður kannana meðal framkvæmdaaðila, farið yfir tölfræði og þróun þátttakendahópa og rætt um helstu áskoranir og sóknarfæri á sviðinu. Einnig var fjallað um innleiðingu rafræns umsýslukerfis fyrir raunfærnimat og mikilvægi aukinnar samvinnu milli framhaldsfræðslu, framhaldsskóla og atvinnulífs.

Vinnustofan skapaði vettvang fyrir faglegt samtal, miðlun reynslu og sameiginlega sýn á áframhaldandi þróun raunfærnimats.

Á myndinni eru náms- og starfsráðgjafar Mímis: Hlín, Kristín Erla, Kristín Elfa og Karen.

Höfðabakki 9

110 Reykjavík

580 1800

[email protected]

kt. 701202-3920

 

Opnunartími: Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00

 

Leit