Định vị
Vorönn 2026

Tiếng Iceland

Íslenska 5 (B1.1)

Á námskeiðinu heldur þú áfram að bæta við íslenskuþekkingu þína.

Þú eykur fjölbreyttan orðaforða og eflir sjálfstraustið til að nota íslensku á ýmsan hátt. Við leggjum áherslu á skilning, lestur, ritun og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.

Số 9, đường Höfðabakki
40 klst.
Giá59.500 kr.

Námskeið framundan

Heiti Dagar Dags. Tími Staðsetning Giá
Icelandic flag
Íslenska 5
Þri og fim 31. Th3 2026 - 16. Th6 2026 19:40 - 21:50 Định vị 59.500 kr. Đăng ký cho tôi
Icelandic flag
Íslenska 5
Laugardagar 25. Th4 2026 - 27. Th6 2026 09:00 - 13:30 Định vị 59.500 kr. Đăng ký cho tôi

Học tập tại Mími như thế nào?

  • Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skemmtilegar kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið Íslenska 5 er sérsniðið fyrir þig sem hefur lokið stigi 4 með góðum árangri.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja áfram upp fjölbreyttan orðaforða daglegs máls. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, þ.e. lestur, ritun, skilning og talþjálfun, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.

Íslenska 5 er framhaldsnámskeið á stigi B 1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum  . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Heftið Íslenska fyrir 5. stig er notað, auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.

Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þörfum þínum.

Við leggjum áherslu á talþjálfun og að þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.

Þú notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku.

Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.

Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á einfaldan og hagnýtan hátt í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.

Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku. Undanfari er Íslenska 1, 2, 3 og 4 (160 klukkustundir) eða sambærileg þekking.

Á fimmta stigi er íslenska notuð í kennslu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.

Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.

Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Bạn có cần giúp đỡ không?

Bạn chưa biết khóa học nào phù hợp nhất với mình? Bạn cần đánh giá kinh nghiệm và kỹ năng của bản thân? Tại Mími, chúng tôi cung cấp dịch vụ tư vấn cá nhân và giúp bạn tìm ra con đường phù hợp nhất cho việc học tập hoặc sự nghiệp của mình.

Địa chỉ email [email protected]

Điện thoại 580 1800

Lời khuyên tại Mímir

Leit