Námskeiðið Íslenska 6 er sérsniðið fyrir þig sem hefur lokið stigi 5 með góðum árangri eða hefur sambærilega færni í íslensku.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að byggja áfram upp fjölbreyttan orðaforða. Þú þjálfar alla þætti tungumálsins, þ.e. lestur, ritun, málfræðinotkun, skilning og talþjálfun í samræmi við þínar þarfir.
• Afslappað andrúmsloft sem býður öll velkomin.
• Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
• Árangursríkar og skemmtilegar kennsluaðferðir.
• Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
• Fjölbreytt úrval námskeiða.
Námskeiðið er einstaklingsmiðað að hluta. Það er byggt á lestri texta, gagnvirkum æfingum, verkefnaskilum og netspjalli við kennarann, auk hópavinnu nemenda.
Fjarnám krefst meira sjálfstæðis frá nemendum í námi.Námskeiðið er að hluta til kennsla á netinu með kennara og að hluta sjálfsnám með stuðningi kennara.
Íslenska 6 er framhaldsnámskeið á stigi B 1.2 samkvæmt Khung tham chiếu ngôn ngữ châu Âu .
Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Allt námsefni er rafrænt. Það byggir á völdum textum og verkefnum auk efnis af neti og samfélagsmiðlum í samræmi við áhuga og þarfir nemenda.
Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi og sem tengist samfélagsumræðu og þínum þörfum.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og að þú æfir fjölbreytta íslensku bæði í samtölum og frásögn.
Þú notar fjölbreyttar aðferðir sem auka sjálfstraust þitt til að tala íslensku, tjá skoðanir þínar og taka þátt í umræðum.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kennd og þjálfuð á í tengslum við námsefnið og á grunni þess sem þú hefur þegar lært.
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected]
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Bạn chưa biết khóa học nào phù hợp nhất với mình? Bạn cần đánh giá kinh nghiệm và kỹ năng của bản thân? Tại Mími, chúng tôi cung cấp dịch vụ tư vấn cá nhân và giúp bạn tìm ra con đường phù hợp nhất cho việc học tập hoặc sự nghiệp của mình.
Địa chỉ email [email protected]
Điện thoại 580 1800