Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku en það er framhald af námskeiðinu Að lesa og skrifa á íslensku. Þú heldur áfram að byggja grunn í málinu og efla sjálfstraust til að nota tungumálið.
Við leggjum áherslu á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi. Námstækni, sjálfsefling og þjálfun í að nota rafrænar lausnir er hluti af námskeiðinu, auk fræðslu um íslenskt atvinnulíf.
Námskeiðið Íslenska, atvinnulíf og samfélag er námskeið á stigi 1 framhald/stig 2 hægferð í íslensku. Á námskeiðinu er haldið áfram að byggja upp grunnorðaforða í íslensku með áherslu á skilning, lestur, tal, ritun og hlustun. Farið er hægt yfir námsefnið og lögð áhersla á endurtekningar með fjölbreyttum og hagnýtum leiðum. Námstækni, sjálfsefling og þjálfun í að nota rafrænar lausnir er hluti af námskeiðinu. Hluti af námskeiðinu er fræðsla um íslenskt atvinnulíf, meðal annars réttindi og skyldur bæði vinnuveitenda og starfsmanna.
Námskeiðið skiptist í 67 klukkustundir af íslenskunámi og 16 klukkustundir af fræðslu um atvinnulífið og 12 klukkustundir af sjálfseflingu, alls 95 klukkustundir.
Íslenskunámið er framhaldsnámskeið í íslensku á stigi A1.1-A1.2 samkvæmt Khung tham chiếu ngôn ngữ châu Âu . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 og 2 er notað að hluta auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi. Einnig er notað sérhæft efni til þjálfunar í lestri, hljóðfræði og ritun.
Í atvinnulífshluta námskeiðsins er stuðst við fjölbreytt efni af opinberum vefsíðum sem tengjast efninu.
Kennarinn notar einfalda ensku til útskýringa eftir þörfum.
Námskeiðið er kennt á einfaldri ensku og íslensku.
Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.
Þú heldur áfram að þjálfa stafrófið og skýran framburð á íslensku.
Þú heldur áfram að byggja upp góðan grunnorðaforða í íslensku.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.**
Íslenskt atvinnulíf og vinnuumhverfi, sérstaklega réttindi og skyldur vinnuveitenda og starfsmanna, er kynnt.
Þú færð fræðslu og þjálfun í árangursríkum samskiptum fyrir samstarf og samvinnu.
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að verða fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill halda áfram að læra íslensku, fræðast um íslenskt atvinnulíf og efla samskipti og sjálfstraust.
Nhóm đối tượng của giáo dục thường xuyên, theo Hội đồng Quỹ Đào tạo. Điều khoản và Điều kiện của Quỹ Giáo dục
Námsmat byggist á mætingu, símati og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
Khóa học này được Quỹ Giáo dục tài trợ nhằm tạo điều kiện tiếp cận bình đẳng và thúc đẩy việc học tập cho người lớn.
Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. Allar námskrár FA má nálgast hér
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Bạn chưa biết khóa học nào phù hợp nhất với mình? Bạn cần đánh giá kinh nghiệm và kỹ năng của bản thân? Tại Mími, chúng tôi cung cấp dịch vụ tư vấn cá nhân và giúp bạn tìm ra con đường phù hợp nhất cho việc học tập hoặc sự nghiệp của mình.
Địa chỉ email [email protected]
Điện thoại 580 1800