Định vị
Học kỳ mùa thu năm 2026

Tiếng Iceland

Íslenska í leikskóla og frístund (A1.2-A2.1)

Viltu vinna í starfi með börnum en þarft að bæta íslenskukunnáttu þína?

Á námskeiðinu nærð þú betri tökum á að tala og skilja íslensku. Með markvissum æfingum og þjálfun eykur þú færni þína í að tala íslensku. Áhersla er lögð á þjálfun í samskiptum í störfum á leikskóla og í frístundastarfi með börnum.

Học kỳ mùa thu năm 2026
Số 9, đường Höfðabakki
40 klst.
Giá59.500 kr.

Hvernig er að læra í Mími?

  • Afslappað og hlýlegt andrúmsloft sem býður öll velkomin!
  • Vingjarnlegir og faglegir kennarar.
  • Árangursríkar og skapandi kennsluaðferðir.
  • Fjölbreytt kennsluefni fyrir öll stig.
  • Fjölbreytt úrval námskeiða.

Námskeiðið er framhaldsnámskeið á stigi A1.2-A2.1 samkvæmt Khung tham chiếu ngôn ngữ châu Âu*. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt og hagnýtt námsefni og lögð áhersla virka þátttöku nemenda. Þannig verður íslenskunámið bæði árangursríkt og skemmtilegt.

*Við skráningu á námskeið í íslensku samþykkja nemendur að vera fluttir á milli hópa ef þörf krefur til að tryggja sem bestan námsárangur.

Þú lærir og þjálfar orðaforða og orðasambönd sem tengjast raunverulegum aðstæðum í leikskóla og frístund.

Þú verður öruggari í samskiptum á íslensku, hvort sem það er í samtölum við börn eða samstarfsfólk.

Þú þjálfar skýran framburð á íslensku.

Hagnýt málfræðiatriði sem tengjast viðfangsefninu eru hluti af námsefninu og þjálfuð í samskiptum.*

*Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.

Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku.

Undanfari er að minnsta kosti Íslenska 1 og 2 (80 klukkustundir) eða sambærileg kunnátta.

Námskeiðið er kennt á íslensku. Þátttakendur verða að geta tjáð sig á einfaldan hátt á íslensku og kunna grunnatriði í málinu. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.

Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.

Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.

Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.

Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].

Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]

Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.

Bạn có cần giúp đỡ không?

Bạn chưa biết khóa học nào phù hợp nhất với mình? Bạn cần đánh giá kinh nghiệm và kỹ năng của bản thân? Tại Mími, chúng tôi cung cấp dịch vụ tư vấn cá nhân và giúp bạn tìm ra con đường phù hợp nhất cho việc học tập hoặc sự nghiệp của mình.

Địa chỉ email [email protected]

Điện thoại 580 1800

Lời khuyên tại Mímir

Leit