
Mímir hefur tekið stórt skref fram á við með nýrri ásýnd og endurnýjuðum vef. Um er að ræða heildræna endurmörkun sem byggir á nýju merki, ferskri hönnun og skýrari upplifun fyrir notendur.
Nýja merkið sækir innblástur í bækur í hillu – tákn um lærdóm og þekkingu. Einföld og sterk form mynda grunn að allri framsetningu, hvort sem er í stafrænu efni eða prenti. Leturgerðin hefur einnig fengið sérsniðna meðferð þar sem einkenni merkisins endurspeglast í leturformum.
Við endurmörkunina var lögð áhersla á að halda í rætur Mímis. Bókin, sem var lykiltákn fyrra merkis, fær nýtt líf í uppfærðri mynd. Litapallettan hefur stækkað og þróast – litirnir eru nú mýkri og yfirvegaðri en bjóða um leið upp á fjölbreytta og lifandi framsetningu.
Nýtt vörumerki Mímis á að geisla af öryggi og trausti. Mímir er staður þar sem öll eru velkomin og eiga að finna sig vel – nútímalegur skóli með skýra stefnu sem byggir á framsækni, fagmennsku og samvinnu.
Nýi vefurinn er fyrsta tenging Mímis við nemendur og því var sérstök áhersla lögð á einfalt aðgengi og skýra framsetningu. Nú er auðveldara en áður að finna nám við hæfi með bættum leitarmöguleikum og öflugum síum. Allir textar hafa verið endurskrifaðir og myndefni fær meira rými til að njóta sín.
Á bak við nýja vefinn liggur mikil vinna. Mímir naut þar öflugs stuðnings sérfræðinga á sviði vefmála; Fúnksjón vefráðgjöf stýrði verkefninu í nánu samstarfi við teymi starfsfólks Mímis, Avista sá um vefsmíðina og Metall um hönnunina. Við færum þeim okkar bestu þakkir og erum virkilega stolt af útkomunni.
Markmiðið er skýrt: að bæta upplifun notenda, einfalda ferla og gera fólki kleift að afgreiða sig sjálft – án þess að missa persónulega þjónustu. Vefurinn er jafnframt aðgengilegur á mörgum tungumálum, sem endurspeglar fjölbreyttan hóp nemenda Mímis.
„Fyrir mér snýst þetta fyrst og fremst um fólkið okkar. Við viljum að allir sem koma til okkar – hvort sem það er á vefnum eða í hús – finni strax að þeir séu velkomnir og að hér sé gott að vera. Nýja ásýndin og vefurinn eiga að endurspegla það: einfaldleika, fagmennsku og hlýju, en líka metnaðinn okkar til að vera framsækin og stöðugt að bæta þjónustuna,“ segir Sólveig Hildur Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mímis.
Nýr vefur Mímis er ekki endapunktur heldur stór áfangi á stafrænni vegferð fyrirtækisins. Með því að fylgjast náið með notkun og hlusta á endurgjöf notenda verður vefurinn þróaður áfram í takt við breyttar þarfir.
Verkefnið sýnir vel að góður undirbúningur, náið samstarf og stöðug endurgjöf skila bestu niðurstöðunni. Nýr vefur er því ekki bara uppfærsla – hann er öruggari, aðgengilegri og byggður á tækni sem er betur í stakk búin til að þjóna notendum til framtíðar.