Þróunar- og samstarfsverkefni skipa mikilvægan sess í starfsemi Mímis.
Verkefnin eru bæði innlend og erlend og unnin í samstarfi við fjölbreytt fyrirtæki, stofnanir og sjóði sem styðja við framhaldsfræðslu og menntun fullorðinna.
Samstarfs- og styrktaraðilar innanlands
Mímir tekur þátt í ýmsum innlendum verkefnum sem styrkt eru af helstu sjóðum framhaldsfræðslunnar, þar á meðal:
Fræðslusjóði framhaldsfræðslunnar
Þróunarsjóði innflytjendamála
Auk þess úthlutar Rannís, fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins, styrkjum til viðurkenndra fræðsluaðila vegna íslenskukennslu. Þessi samvinna gerir okkur kleift að þróa fjölbreytta og öfluga fræðslu sem mætir þörfum fólks um land allt.
Erlend samstarfsverkefni
Á alþjóðavettvangi tekur Mímir þátt í verkefnum á vegum:
Erasmus+ og Nordplus
Verkefnin miða annars vegar að því að efla hæfni markhópa framhaldsfræðslunnar og hins vegar að styðja símenntun og starfsþróun starfsfólks Mímis. Náms- og kynningarheimsóknir erlendra aðila til Mímis hafa einnig farið vaxandi og skapa verðmæt tækifæri til samstarfs og miðlunar þekkingar og reynslu.
Áherslur hvað varðar innlend verkefni:
Áherslur hvað varðar erlend verkefni:
Inngilding og íslenskukennsla í Mýrdalshreppi
Markmið:Verkefnið er þróunar- og undirbúningsverkefni sem miðar að því að greina, samræma og efla tungumálastuðning í fjölmenningarlegu samfélagi.
Í verkefninu verður lagður grunnur að stefnu og leiðarvísi sem styður við inngildingu, íslenskunám og stefnumótandi aðgerðum til að efla notkun íslensku í daglegu lífi og starfi í samfélaginu.
Samstarfsaðilar: Mýrdalshreppur
Styrkt af: Þróunarsjóður innflytjendamála
Íslenskuvæn fyrirtæki
Markmið: Að þróa fyrirmynd að heildstæðum íslenskustuðningi á vinnustöðum sem sameinar fræðslu, vitundarvakningu og stefnumótun. Afurðir verða verkfæri og vottunarkerfið „Íslenskuvænt fyrirtæki“ sem hvetur vinnustaði til að efla íslensku sem tungumálið í starfi og daglegum samskiptum.
Samstarfsaðilar: Alþýðusamband Íslands, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu, Mýrdalshreppur, Samtök atvinnulífsins, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Sjúkrahúsið á Akureyri, Grund – hjúkrunarheimili.
Styrkt af: Mennta- og barnamálaráðuneytið
Gefum íslensku tíma
Markmið: Að efla íslenskukunnáttu og inngildingu starfsfólks á leikskólum.
Í verkefninu verður hannað og innleitt heildstætt íslenskunám á vinnustað. Hluti af því er sérhæft námsefni sem er samþætt kennslufræðilegri nálgun hjá Mími og Íslenskuþorpinu. Hluti af verkefninu er einnig þjálfun íslenskumentora á vinnustað og fræðsla og stuðningur við starfsfólk og stjórnendur um að efla og virkja íslensku í daglegu starfi leikskólanna.
Samstarfsaðilar: Hafnarfjarðarbær og Íslenskuþorpið

Samtal. Samskipti á íslensku í umönnun
Markmið: Að hanna sérhæft námsefni í umönnun aldraðra sem hentar fyrir starfstengd íslenskunámskeið á hjúkrunarheimilum. Efnið byggir á smáforritinu Iðunni og sérhæfðu kennsluefni í umönnun.
Samstarfsaðilar: Helix Health og hjúkrunarheimilin Sunnuhlíð og Seltjörn
Styrkt af: Þróunarsjóður framhaldsfræðslu
Þróun kennsluefnis fyrir Leikskólasmiðju
Markmið: Að semja og hanna starfstengt kennsluefni í íslensku fyrir námsbrautina Leikskólasmiðja og íslenska 3. Efnið er þematengt og tengist daglegu starfi með leikskólabörnum.

BRICK
Markmið: Markmið BRICK er að þróa og festa í sessi nýtt evrópskt líkan fyrir tungumálaþjálfun á vinnustöðum, með áherslu á gæði, öryggi, stafræna og græna færni. Unnið er þvert á lönd og atvinnugreinar með ríkri áherslu á gæðamat, eftirlit og langtímaáhrif.
Með þróunarvinnunni er verið að byggja brú milli tungumálanáms og atvinnulífs með skýra framtíðarsýn fyrir faglegt, öruggt og sjálfbært vinnuumhverfi. Verkefnið miðar að því að þróa stefnumótandi verkefni og verkfæri til að efla starfsþróun fullorðinna úr viðkvæmum hópum með hagnýtri tungumálakennslu (Language for Work).
Á Íslandi verður unnið að verkefnum innan heilbrigðisgeirans á Íslandi, þar sem tungumálanám verður nýtt sem hluti af starfsþróun.
Samstarfsaðilar: Opinberir aðilar, fræðslustofnanir og fyrirtæki í Ítalíu, Frakklandi og Íslandi. Mímir og Vinnumálastofnun eru í verkefninu fyrir hönd Íslands.
Styrkt af: BRICK er hluti af Erasmus+ Policy Experimentation, einum stærsta og metnaðarfyllsta verkefnaflokki innan Erasmus+. Áhersla er á að prófa nýjar stefnumótunandi aðferðir á landsvísu í samstarfi stjórnvalda, fyrirtækja og fræðslustofnana.
Hér eru upplýsingar um nokkur fyrri þróunarverkefni hjá Mími:
Efnið er í vinnslu
Námsbraut fyrir tungumálamentora í fyrirtækjum
Í verkefninu var hönnuð og kennd námsbraut fyrir tungumálamentora í fyrirtækjum. Markmið námsbrautarinnar er að efla tungumálamentora til að vera virkur stuðningur við að efla tungumálakunnáttu starfsmanna, auka menningarlæsi og stuðla að betri samskiptum og samstarfi innan fyrirtækja.
Afurð verkefnisins var námskráin Tungumálamentorar í fyrirtækjum sem var gefin út af Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Styrkt af: Þróunarsjóði framhaldsfræðslu

Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími
Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00