
Útskrift úr grunnnámi Stóriðjuskólans
Útskrift úr Stóriðjuskólanum fór fram þann 14. apríl sl. við hátíðlega athöfn. Stóriðjuskólinn er starfræktur í álverinu í Straumsvík og eru nemendur skólans starfsfólk álversins. Að þessu sinni útskrifuðust 17 nemendur úr grunnnámi Stóriðjuskólans. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, ávarpaði útskriftarnema auk þess sem Rannveig Rist, fráfarandi forstjóri Rio Tinto á Íslandi, flutti ávarp.
Stóriðjuskólinn hefur verið starfræktur í Straumsvík frá árinu 1998 og hefur Mímir verið fræðsluaðili fyrir skólann frá árinu 2017.
Náminu í Stóriðjuskólanum er ætlað að efla þekkingu, öryggisvitund og starfsánægju starfsfólks auk þess að auka möguleika þeirra á starfsmenntun og starfsþróun. Markmið skólans er einnig að auka verðmætasköpun og samkeppnisfærni, auðvelda innleiðingu breytinga og gera vinnustaðinn eftirsóknarverðari.
Við hjá Mími-símenntun óskum útskriftanemunum innilega til hamingju með áfangann.








