Hefur þú áhuga á að hefja nám að nýju?
Menntastoðir er sérsniðið nám fyrir þig sem vilt ljúka fyrsta ári í námi á framhaldsskólastigi. Eftir útskrift úr Menntastoðum er hægt að sækja um í aðfaranám háskóla (Háskólabrú hjá Keili, Háskólagrunn í HR eða Háskólagáttina hjá Bifröst) eða fara í starfs-, iðn- eða tækninám.
Í náminu er lögð áhersla á góðan stuðning við nemendur og að stuðla að jákvæðu viðhorfi til náms. Námið hentar vel sem undirbúningur fyrir frekara nám.
Hægt er að velja um staðnám eða fjarnám

Náms- og starfsráðgjafar Mímis veita persónulega og faglega ráðgjöf og hjálpa þér að átta þig á möguleikum þínum. Við vinnum með þér að því að:
Setja þér markmið
Kanna styrkleika þína
Finna leiðir sem henta þér út frá aðstæðum þínum
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími
Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00