10. sep 2026 - 26. nóv 2026
Þetta námskeið er tækifæri fyrir þig til að stíga þín fyrstu en öruggu skref í að læra japönsku og byrja að tala !
Á þessu námskeiði tekur þú saman stig 1 og 2.
Þú færð góðan grunn í málinu og þjálfar skilning og tal auk þess að byggja upp hagnýtan orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt. Þú færð sjálfstraust til að vaxa og blómstra í tungumálinu.
10. sep 2026 - 26. nóv 2026
Námskeiðið er ætlað byrjendum í japönsku og á því er lögð áhersla á hnitmiðaða kennslu.
Markmiðið er að byggja upp grunnorðaforða og þjálfa framburð og færni í samskiptum.
Að læra að tjá þig og eiga samskipti á japönsku
Að byggja upp orðaforða sem nýtist vel í daglegu lífi
Að þjálfa undirstöðuatriði í málfræði, meðal annars þátíð
Að læra að lesa og skrifa 30 kanji stafi
Að dýpka skilning á menningu og lífsháttum í Japan
Við lok námskeiðsins muntu búa yfir aukinni færni til að eiga samskipti á japönsku og getu til að nota hagnýtan orðaforða af meira öryggi.
Kennarinn notar ensku til útskýringar í kennslunni.
Kennslubókin Genki I (kaflar 3-4) er notuð.
Það er 18 ára aldurstakmark á námskeið hjá Mími.
Nauðsynlegt er að ná 75% mætingu á námskeiðinu til að fá skírteini. Þetta tryggir einnig að þú fáir sem mest út úr námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda þess að námskeið verði haldið.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
kt. 701202-3920
Opnunartími
Virkir dagar frá kl. 8.00-16.00