Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku.
Þú byggir áfram upp grunnorðaforða og eflir sjálfstraust til að læra og nota tungumálið. Við leggjum áherslu á skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi.
Námskeiðið Íslenska 2 fjarnám er sérsniðið fyrir þig sem ert að halda áfram að læra íslensku.* Á námskeiðinu er lögð áhersla á að halda áfram að byggja upp grunnorðaforða daglegs máls, bæði í skilningi og tali, með fjölbreyttum og hagnýtum aðferðum.
Námskeiðið er einstaklingsmiðað að vissu marki, byggt á lestri texta, gagnvirkum æfingum, verkefnaskilum og netspjalli við kennarann, sem og hópavinnu nemenda. Fjarnám krefst meira sjálfstæðis frá nemendum í námi. Námskeiðið er að hluta til á netinu með kennara og að hluta til sjálfsnám með stuðningi kennarans.
Íslenska 2 er framhaldsnámskeið á stigi A1.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum. Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Allt námsefni er rafrænt. Námsefnið Íslenska fyrir alla 2 er notað auk aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi.
Þú heldur áfram að læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar setningar bæði í samtölum og frásögn.
Allir færniþættir eru æfðir í íslenskunáminu: Skilningur, tal, lestur og ritun.
Málfræðin er áfram kynnt á einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill læra íslensku.
Undanfari er Íslenska 1 (40 klst.) eða sambærileg þekking. Á öðru stigi er íslenska notuð í kennslu en enska notuð sem millimál ef nauðsyn krefur. Þátttakendur verða að kunna að lesa og skrifa latneskt letur.
Námskeiðið hentar fólki sem vill meira sjálfstæði í námi, er með grunnkunnáttu í tölvunotkun og aðgang að tölvu.
Sérsniðin lausn fyrir fjölbreytta hópa: Fyrir þau sem hafa ekki enskukunnáttu er boðið upp á Íslensku 2 hægferð, Íslensku, atvinnulíf og samfélag (námskrár FA) eða námskeið fyrir sérstaka tungumálahópa þar sem kennarinn talar tungumál hópsins.
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Til þess að útskrifast og fá skírteini er nauðsynlegt að ná 75% mætingu á námskeiðinu.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Íslenskunámskeið í Mími eru byggð á námskrá í íslensku fyrir útlendinga sem gefin er út af mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
هل أنت متردد بشأن الدورة التدريبية الأنسب لك؟ هل تحتاج إلى تقييم خبراتك ومهاراتك؟ في Mími، نقدم لك إرشادًا شخصيًا ونساعدك في إيجاد المسار المناسب لدراستك أو مسيرتك المهنية.
عنوان البريد الإلكتروني [email protected]
الهاتف 580 1800