Á námskeiðinu heldur þú áfram að stíga örugg skref í að læra íslensku en það er framhald af námskeiðinu Að lesa og skrifa á íslensku. Þú heldur áfram að byggja grunn í málinu og efla sjálfstraust til að nota tungumálið.
Við leggjum áherslu á að byggja upp grunnorðaforða, skilning og talþjálfun sem nýtist í daglegu lífi. Námstækni, sjálfsefling og þjálfun í að nota rafrænar lausnir er hluti af námskeiðinu, auk fræðslu um íslenskt atvinnulíf.
Kennarinn talar arabísku. Námskeiðið Íslenska, atvinnulíf og samfélag er námskeið á stigi 1 framhald/stig 2 hægferð í íslensku.
Á námskeiðinu er haldið áfram að byggja upp grunnorðaforða í íslensku með áherslu á skilning, lestur, tal, ritun og hlustun. Farið er hægt yfir námsefnið og lögð áhersla á endurtekningar með fjölbreyttum og hagnýtum leiðum.
Námstækni, sjálfsefling og þjálfun í að nota rafrænar lausnir er hluti af námskeiðinu. Hluti af námskeiðinu er fræðsla um íslenskt atvinnulíf, meðal annars réttindi og skyldur bæði vinnuveitenda og starfsmanna.
Námskeiðið skiptist í 67 klukkustundir af íslenskunámi og 16 klukkustundir af fræðslu um atvinnulífið og 12 klukkustundir af sjálfseflingu, alls 95 klukkustundir.
Íslenskunámið er framhaldsnámskeið í íslensku á stigi A1.1-A1.2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum . Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 og 2 er notað að hluta auk leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi. Einnig er notað sérhæft efni til þjálfunar í lestri, hljóðfræði og ritun.
Í atvinnulífshluta námskeiðsins er stuðst við fjölbreytt efni af opinberum vefsíðum sem tengjast efninu.
Námskeiðið er kennt á arabísku og íslensku.
Læra stafrófið og framburð: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku og þjálfun í íslenska hljóðkerfinu.
Þú byggir upp grunnorðaforða með því að nota myndir og orð á áhrifaríkan hátt.
Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.
Þú færð þjálfun í grunnatriðum í lestri og skrift einfaldra orða og setninga. Þú æfir einnig að skrifa einföld orð og grunn persónupplýsingar á rafrænan máta.
Þú æfir þig að nota hagnýtar vefsíður og smáforrit með tölvum og snjallsímum.
Málfræði er kynnt á mjög einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.
Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.
*Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.
Námskeiðið er fyrir fólk, 18 ára og eldra, sem vill halda áfram að læra íslensku, fræðast um íslenskt atvinnulíf og efla samskipti og sjálfstraust.
Markhópur framhaldsfræðslunnar samkvæmt stjórn Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs
Námsmat byggist á mætingu, símati og virkni í tímum sem hvetur til virkrar þátttöku.
Til að ljúka námsbrautinni og útskrifast er nauðsynlegt að ná 80% mætingu.
Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði til að jafna aðgengi og efla nám fyrir fullorðna.
Kennsla fer fram samkvæmt námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, vottaðri af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem tryggir gæði og áreiðanleika. Allar námskrár FA má nálgast hér
Stöðumat í upphafi námskeiðs er innifalið í námskeiðsgjaldinu fyrir þau sem þess þurfa til að vita hvaða stig hentar þeim best í íslenskunáminu. Þetta tryggir gæði og betri árangur.
Athugið að lágmarksþátttaka er forsenda fyrir námskeiðshaldi.
Rafrænt stöðumat, tengiliður: [email protected].
Stöðumat í Höfðabakka 9: [email protected]
Annað: Fyrir þau sem koma frá löndum utan EES: Hluti af skilyrðum Útlendingastofnunar til að fá ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi er að hafa lokið 150 kennslustundum/120 klukkustundum í íslenskunámi. Það skiptir ekki máli hvort tekin eru mismunandi stig eða hvort stig eru endurtekin.
Ertu óviss um hvaða nám hentar þér best? Þarftu að meta þína reynslu og kunnáttu? Hjá Mími bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og við aðstoðum þig við að finna rétta leið í námi eða starfi.
Netfang [email protected]
Sími 580 1800