بازدیدهای اراسموس از سراسر جهان

Síðustu tveir mánuðir hafa verið spennandi hjá Mími-símenntun. Við fengum það ánægjulega tækifæri að taka á móti fjórum alþjóðlegum hópum í gegnum Erasmus-verkefni og kynna þeim starfsemi okkar og reynslu af fullorðinsfræðslu.

Í mars tókum við á móti tveimur stórum hópum frá Grikklandi og Frakklandi. Við skiptumst á hugmyndum um kennsluaðferðir í fræðslu fullorðinna og ræddum bæði áskoranir og árangur á þessu sviði. Í maí heimsóttu okkur síðan tveir skólar frá Svíþjóð sem gaf okkur tækifæri til að kynnast norrænni nálgun á fullorðinsfræðslu.

Þessar heimsóknir hafa veitt okkur áhugaverða innsýn og ný sjónarhorn á framhaldsfræðslu.

Við erum þakklát fyrir heimsóknirnar og hlökkum til að halda áfram að efla alþjóðlegt samstarf okkar í gegnum Erasmus.

لایت