Þróunar- og samstarfsverkefni

Öflugur þáttur í starfsemi Mímis

Þróunar- og samstarfsverkefni skipa mikilvægan sess í starfsemi Mímis.

Verkefnin eru bæði innlend og erlend og unnin í samstarfi við fjölbreytt fyrirtæki, stofnanir og sjóði sem styðja við framhaldsfræðslu og menntun fullorðinna.

Samstarfs- og styrktaraðilar

Samstarfs- og styrktaraðilar innanlands

Mímir tekur þátt í ýmsum innlendum verkefnum sem styrkt eru af helstu sjóðum framhaldsfræðslunnar, þar á meðal:

Fræðslusjóði framhaldsfræðslunnar

Þróunarsjóði innflytjendamála

Auk þess úthlutar Rannís, fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins, styrkjum til viðurkenndra fræðsluaðila vegna íslenskukennslu. Þessi samvinna gerir okkur kleift að þróa fjölbreytta og öfluga fræðslu sem mætir þörfum fólks um land allt.

Erlend samstarfsverkefni

Á alþjóðavettvangi tekur Mímir þátt í verkefnum á vegum:

Erasmus+ og Nordplus

Verkefnin miða annars vegar að því að efla hæfni markhópa framhaldsfræðslunnar og hins vegar að styðja símenntun og starfsþróun starfsfólks Mímis. Náms- og kynningarheimsóknir erlendra aðila til Mímis hafa einnig farið vaxandi og skapa verðmæt tækifæri til samstarfs og miðlunar þekkingar og reynslu.

Áherslur síðustu ára

Áherslur hvað varðar innlend verkefni:

  • að auka gæði íslenskukennslu, bæði í stað- og fjarnámi
  • að þróa starfstengt íslenskunám sem styður við atvinnuþátttöku
  • að efla stuðning, kennsluefni og kennsluaðferðir innan framhaldsfræðslunnar með sérstakri áherslu á tækni

Áherslur hvað varðar erlend verkefni:

  • að styrkja atvinnuþátttöku fólks af erlendum uppruna
  • að styðja ungt fólk með þróun raunfærnimats og leiðir til að efla almenna starfshæfni
  • að þróa verkefni sem byggja upp hæfni og færni á evrópskum vinnumarkaði
  • að uppfæra tæknilausnir og stafrænt námsumhverfi

Inngilding og íslenskukennsla í Mýrdalshreppi

Markmið:Verkefnið er þróunar- og undirbúningsverkefni sem miðar að því að greina, samræma og efla tungumálastuðning í fjölmenningarlegu samfélagi.

Í verkefninu verður lagður grunnur að stefnu og verkferlum sem styðja við íslenskunám, notkun íslensku í daglegu lífi og starfi í sveitarfélaginu og inngildingu. Lokaafurð verkefnisins verða drög að leiðarvísi með stefnumótandi aðgerðum til að efla íslensku og inngildingu í samfélaginu.

Samstarfsaðilar:

Styrkt af: Þróunarsjóður innflytjendamála

Íslenskuvæn fyrirtæki

Markmið: Íslenskukennsla og stuðningur við íslenskunám á vinnustöðum

Samstarfsaðilar:

Styrkt af: Samstarfs- og nýsköpunarstyrkur til íslenskunáms innflytjenda (Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið)

Gefum íslensku tíma

Markmið: Að efla íslenskukunnáttu og inngildingu starfsfólks á leikskólum.

Í verkefninu verður hannað og innleitt heildstætt íslenskunám á vinnustað, þar sem sérhæft námsefni er samþætt kennslufræðilegri nálgun hjá Mími og Íslenskuþorpinu. Hluti af verkefninu er einnig þjálfun íslenskumentora á vinnustað og fræðsla og stuðningur við starfsfólk og stjórnendur um að efla og virkja íslensku í daglegu starfi leikskólanna.

Samstarfsaðilar: Hafnarfjarðarbær og Íslenskuþorpið

Samtal. Samskipti á íslensku í umönnun

Markmið: Að hanna sérhæft starfstengt námsefni í umönnun aldraðra sem hentar fyrir starfstengd íslenskunámskeið á hjúkrunarheimilum. Efnið byggir á smáforritinu Iðunni og sérhæfðu kennsluefni úr umönnun.

Samstarfsaðilar: Helix Health og hjúkrunarheimilin Sunnuhlíð og Seltjörn​

Styrkt af: Þróunarsjóður framhaldsfræðslu

Þróun kennsluefnis fyrir Leikskólasmiðju

Markmið: Að semja og hanna kennsluefni í íslensku fyrir námsbrautina Leikskólasmiðja og íslenska 3. Efnið er þematengt og tengist daglegu starfi með leikskólabörnum.

BRICK

Markmið:

Samstarfsaðilar:

Discover and Empower

Markmið:

Samstarfsaðilar:

Hér eru upplýsingar um nokkur fyrri þróunarverkefni hjá Mími:

Efnið er í vinnslu

#!trpst#trp-gettext data-trpgettextoriginal=58#!trpen#لایت#!trpst#/trp-gettext#!trpen#